Strákarnir í b-liði 6. flokks Selfoss tóku þátt í úrslitakeppni Pollamóts KSÍ í Reykjaneshölinni í Keflavík sunnudaginn 22. ágúst s.l. Í riðlakeppninni spiluðu þeir þrjá leiki. Þeir byrjuðu á því að gera 0:0 jafntefli við Breiðablik 3, en unnu svo Reyni S. 11:0 og Fjölni 5:0. Í úrslitaleiknum léku þeir við Snæfellsnes og unnu 4:2. Þar með urðu þeir Íslandsmeistarar SV (Suðvesturland) í flokki b-liða. Liðið skoraði 20 mörk en fékk á sig 2. Strákarnir eru allir fæddir 2001 og hafa staðið sig vel í sumar. Þjálfarar liðsins eru þeir Guðmundur Sigmarsson og Stefán Ragnar Guðlaugsson.
Íslandsmeistarar SV b-liða í 6. flokki.
Efri röð frá vinstri: Þorsteinn, Stefán Þór, Gunnar Flosi, Haukur og Tristan. Neðri röð frá vinstri: Haukur Páll, Valdimar, Martin Bjarni, Alexander og Aron Emi.
