Beint á leiđarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

9.9.2010 | Knattspyrna

Fínn árangur hjá stelpunum í 6. flokki í sumar

fotb_hk_mot_7kvStelpurnar í 6. flokki B náðu þeim fína árangri á dögunum að lenda í öðru sæti á Íslandsmótinu. Þær byrjuðu á því að vinna sinn riðill sem spilaður var fyrr í sumar. Eftir það lá leiðin í úrslit og þar gekk þeim mjög vel. Þær unnu alla sína leiki nema sjálfan úrslitaleikinn, en þá spiluðu þær við stelpurnar í Grindavík og töpuðu naumlega 2-1 í skemmtilegum leik. Flottur árangur hjá þessum efnilegu stelpum sem allar voru á yngra ári í 6. flokki í sumar.

Meðfylgjandi mynd var tekin að loknu fótboltamótinu í Fífunni 21 - 22 ágúst, 2010. Á myndinni eru (aftari röð): Laufey þjálfari, Katla María, Barbára Sól, Sigríður Lilja og Lilja Rós. (Fremri röð frá vinstri): Sara Sif, Þóra Rán, Júlíana, Þórunn Anna og Soffía.


Á nćstunni


olismot.is set.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta