Beint á leiðarkerfi vefsins

Samþykktir klúbbsins

Samþykktir fyrir Stuðningsmannafélag knattspyrnudeildar Umf. Selfoss

1. gr. Stuðningsmannafélag knattspyrnudeildar Umf. Selfoss er félag stuðningsmanna knattspyrnudeildar Ungmennafélags Selfoss á Selfossi.

 

2. gr. Markmið félagsins er að efla þátttöku og auka tengsl hins almenna stuðningsmanns við starf knattspyrnudeildarinnar og efla stuðninginn við keppnislið deildarinnar. Félaginu er einnig ætlað að vera samstarfsvettvangur stuðningsmanna og stjórnar deildarinnar.

 

3. gr. Félagsmenn geta þeir einir orðið sem óska þess skriflega við stjórn félagsins og skuldbinda sig jafnframt til að greiða félagsgjald til félagsins samkvæmt ákvörðun aðalfundar. Stjórn félagsins skal halda skrá um félagsmenn.

 

4. gr. Óski félagsmaður þess að ganga úr félaginu, skal það gert skriflega til stjórnar. Hafi félagsmaður ekki greitt félagsgjald fyrir í sex mánuði samfellt, jafngildir það úrsögn úr félaginu, án sérstakrar tilkynningar þar að lútandi. Eigi getur aðili, sem gengur úr félaginu krafist endurgjalds á fé, sem hann hefur lagt til félagsins eða nokkurs hluta af eignum þess. Aðili sem gengið hefur úr félaginu vegna vanskila getur ekki orðið félagsmaður að nýju, nema að undangengnu uppgjöri á eldri skuldum.

 

5. gr. Aðalafundur félagsins fer með æðsta vald þess, en þar á eftir ræður félagsfundur. Stjórn félagsins annast dagleg málefni þess. Reikningsár félagsins er frá 1. september til 31. ágúst.

 

6. gr. Aðalfund skal halda í október- eða nóvembermánuði ár hvert. Stjórn skal boða hann með skriflegri auglýsingu með minnst sjö daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur hafi löglega verið til hans boðað.

 

7. gr. Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi, enda hafi þeir greitt árgjald. Allir þeir sem hafa rétt til setu á aðalfundi skulu hafa málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundinum. Enginn getur farið með meira en eitt atkvæði á fundinum. Stjórn félagsins er heimilt að bjóða mönnum sem ekki eru félagsmenn fundarsetu, ef hún telur ástæðu til, án þess að þeir hafi tillögu- eða atkvæðisrétt.

 

8. gr. Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
2. Reikningsskil félagsins fyrir liðið starfsár árituð af stjórn félagsins og a.m.k. einum skoðunarmanni Umf. Selfoss, skulu lögð fram til samþykktar.
3. Tekin skal ákvörðun um fjárhæð félagsgjalds.
4. Breytingar á samþykktum.
5. Stjórn félagsins skal kosin. Formaður skal kjörin sérstaklega en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.
6. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni.

 

9. gr. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum í öllum málum nema um tillögur að breytingum á samþykktum þessum, en þá þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.

 

10. gr. Stjórn félagsins skal skipuð þremur mönnum og tveimur til vara. Kjörtímabil stjórnarmanna og varastjórnarmanna er eitt ár. Stjórn félagsins getur skipað í starfsnefndir og sett þeim erindisbréf, til að vinna að afmörkuðum verkefnum í starfsemi félagsins. Slíkar nefndir heyra beint undir stjórn.

 

11. gr. Stjórn félagsins skal boða til félagsfundar ef henni þykir þess þörf. Stjórn er skylt að boða til félagsfundar ef 1/4 hluti félagsmanna krefjast þess. Einnig ef aðalstjórn Umf. Selfoss eða stjórn knattspyrnudeildar Umf. Selfoss óska þess.

 

12. gr. Til félagsfundar er boðað með sama hætti og til aðalfundar. Félagsfundur getur ekki gert breytingar á samþykktum þessum, ekki gert breytingar á stjórn og ekki lagt félagið niður. Að öðru leyti gilda sömu reglur á félagsfundi og á aðalfundi.

 

13. gr. Stjórn félagsins skal sjá til þess að tekjum félagsins sé ráðstafað í samræmi við markmið félagsins og ákvarðanir aðalfunda og félagsfunda. Jafnan skal haft samráð við stjórn knattspyrnudeildar Umf. Selfoss varðandi ráðstöfun tekna og tekjuöflun umfram félagsgjöld.

 

14. gr. Stjórn félagsins kemur fram fyrir hönd félagsmanna gagnvart stjórn knattspyrnudeildar Umf. Selfoss og semur um fríðindi til handa félagsmönnum.

 

15. gr. Tillögu um að leggja félagið niður er aðeins hægt að taka fyrir á löglegum aðalfundi og þarf minnst 2/3 hluta atkvæða til að teljast samþykkt. Verði félaginu slitið skulu eignir þess renna til knattspyrnudeildar Umf. Selfoss.


Á næstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta