Beint á leiðarkerfi vefsins

Fyrir foreldra barna í knattspyrnu

Ert þú ekki búinn að skrá barnið þitt? Þá vill Unglingaráð Knattspyrnudeildar Selfoss biðja þig að gera það sem fyrst.

Skráningarblað Unglingaráðs Knattspyrnudeildar Selfoss

Á undanförnum árum hefur stuðningur og þátttaka foreldra barna í knattspyrnu stóraukist, en sífelt verður algengara að foreldrar mæti á æfingar og leiki barna sinna og taki virkan þátt í knattspyrnustarfinu. Þetta hefur eflt knattspyrnu barna og knattspyrnuhreyfinguna í heild sinni og fagnar Knattspyrnudeild Selfoss þessari jákvæðu þróun.

Knattspyrna er langvinsælast íþróttagreinin á Íslandi og í heiminum. Mikill meirihluti iðkenda eru börn og unglingar undir 16. ára aldri. Öllum þessum fjölda fylgja fjölskyldur sem styðja við börnin í knattspyrnuiðkun þeirra og mæta á völlinn.

Kostir knattspyrnuiðkunar fyrir börn
Knattspyrnuiðkun barna er þroskandi því henni fylgja fjölmargir kostir:

  • Ný tækifæri fyrir barnið þitt til að eignast góða vini
  • Skemmtun, gleði, spenna og ánægja (bæði fyrir þig og barnið þitt)
  • Tækifæri til að bæta líkamlega færni og sjálfstraust
  • Betri hreyfiþroski og félagsþroski
  • Agi og sjálfsagi
  • Að læra hvernig á að vinna í hóp til að ná sameiginlegum árangri
  • Að taka tillit til annara og vinna með ólíkum einstaklingum
  • Og margt fleira!

Þú sem foreldri getur tekið að þér fjölmörg hlutverk til að styðja við þátttöku barnsins þíns í knattspyrnu. Það er góð hugmynd að spyrja þjálfarann hvernig þú getur hjálpað til.

Möguleg hlutverk foreldra
Hér er listi yfir möguleg hlutverk sem þú getur tekið að þér fyrir flokk barnsins:

  • Sjá um heimasíðuna
  • Taka ljósmyndir á æfingum, ferðalögum, leikjum og öðrum uppákomum
  • Gerast liðsstjóri, búningastjóri, dómari, aðstoðarþjálfari eða þjálfari
  • Taka þátt í eða hafa umsjón með fjáröflun
  • Skipuleggja ferðalög og keppnisferðir
  • Mæta á æfingar og leiki til að hvetja barnið þitt sem og hin börnin
  • Bjóða þig fram í foreldraráð
  • Taka virkan þátt á foreldrafundum og foreldrastarfi, kynnast öðrum foreldrum
  • Sjá um boltamál
  • Sjá um félagslegu hliðina (pizzukvöld, bíóferðir, skemmtikvöld, vídeókvöld, fyrirlestra, að fara saman á knattspyrnuleik o.s.frv.)

Öll þessi hlutverk er best að vinna í góðu samráði og samvinnu við þjálfara flokksins sem gæti líka haft fleiri góðar hugmyndir.

Kröfur sem þú getur gert til þjálfarans og félagsins

  • Að ekki séu of margir leikmenn á æfingu á hvern þjálfara
  • Að 1 bolti sé til staðar fyrir hvert barn
  • Að æfingarnar séu fjölbreyttar, spenandi og skemmtilegar
  • Að þjálfari barnsins þíns sé góð fyrimynd og sjáist ekki drekka áfengi, reykja eða nota munntóbak fyrir framan barnið þitt
  • Að allir fái jafnan rétt til þátttöku á æfingum og í keppni
  • Þjálfari barnsins þíns á að hafa uppeldis- eða þjálfaramenntun að baki t.d. sem íþróttakennari, íþróttafræðingur eða hafa lokið við fyrstu tvö þjálfaranámskeið KSÍ

Til umhugsunar

Foreldrar eiga ekki að hafa áhrif á val þjálfarans í lið eða hóp

Samskipti við þjálfara

  • Með því að mæta á æfingar og leiki sýnir þú barninu þínu mikinn stuðning, en jafnfram veitir þú þjálfaranum gott aðhald
  • Eigðu góð samskipti við þjálfarann (líkt og við kennara barnsins í skólanum), en láttu hann samt um að þjálfa
  • Árangur þjálfara barna í knattspyrnu á ekki eingöngu að meta út frá því hversu margir titlar eða leikir unnust heldur hversu mikil aukning hefur orðið á fjölda barna sem æfa knattspyrnu í flokknum, framfarir leikmanna og hversu lítið brottfall hefur orðið úr flokknum
  • Finnst barninu þínu gaman á æfingum? Hlakkar barnið til að fara á fótboltaæfingu? Á barnið góða vini í flokknum?
  • Er þjálfarinn áhugasamur og duglegur að seja börnum til? Læra börnin nýja færni hjá honum taka framförum? Þetta eru allt mælikvarðar á gott starf knattspyrnuþjálfarans

 

 


Á næstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta