Laugardaginn 5. nóv. kl. 11:30 var formlega opnuð ný heimasíða Ungmennafélags Selfoss,
www.umfs.is. Formaður félagsins Þórir Haraldsson greindi frá þeirri undirbúningsvinnu sem unnin hefur verið varðandi heimasíðuna. EC hugbúnaður ehf. sá um uppsetningu og smíði vefsvæðisins, hýsir það og þjónustar. Klara Ö. Sigfúsdóttir gjaldkeri félagsins hefur séð um að setja inn allt efni á síðuna f.h. félagsins og verður aðalvefstjóri hennar.