Stefnt er ađ ţví ađ gefa út blađ í ágúst međ upplýsingum um vetrarstarf allra deilda félagsins. Verđur blađinu dreift í öll hús á Selfossi. Í blađinu verđa ćfingatímar, nöfn ţjálfara, ćfingagjöld og ýmislegt fleira. Einnig er á döfinni ađ vera međ sameiginlega skráningardaga í Tíbrá ţar sem hćgt verđur ađ ganga frá ćfingagjöldum vetrarins. Mikiđ er um ađ börn og unglinar ćfi fleiri en eina íţróttagrein og ţví gott ađ geta gengiđ frá öllu í sömu ferđinni. Skráningardagarnir verđa auglýstir síđar.
Heimasíđa Umf. Selfoss hefur veriđ mikiđ heimsótt undanfarnar vikur og mánuđi. Síđan nýtur mikilla vinsćlla og er greinilegt ađ margir sćkja ţangađ fréttir og upplýsingar. Deildir félagsins hafa margar hverjar nýtt sér ţennan samskiptamáta vel og flytja nćr daglegar fréttir af ţví sem er ađ gerast hjá ţeim. Ef litiđ er yfir tölfrćđi júlímánađar kemur í ljós ađ tćplega 17.000 heimsóknir komu á síđuna í mánuđinum sem gerir um 550 manns á dag. Verđur ţađ ađ teljast mjög gott.
Nú styttist óđum í 25. Landsmót UMFÍ sem fram fer í Kópavogi. Mótiđ verđur sett á Kópavogsvelli, fimmtudaginn 5. júlí kl. 20:00. Ýmis dagsrká verđur í bođi fyrir alla aldurshópa. Mótinu líkur sunnudaginn 8. júlí.
Ţess má geta ađ 27. Landsmót UMFÍ verđur haldiđ á Selfossi 2012.
Ađ baki hátíđarhalda á 17. júní liggur mikil vinna ţar sem margir leggja hönd á plóg. Ţjóđhátíđarnefnd Umf. Selfoss vill ţakka öllum ţeim sem komu ađ undirbúningi og framkvćmd hátíđarhaldanna á 17. júní á Selfossi fyrir vel unnin störf.
Íţrótta- og Ólympíusamband Íslands býđur upp á fjarnám í ţjálfaramenntun í sumar. Um er ađ rćđa 1. stig í ţjálfaramenntun almenns hluta, ţ.e. 1a, 1b og 1c.
Íţrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir einnig eftir umsóknum um ţjálfarastyrki fyrir vorönn 2007. Hver styrkur er ađ upphćđ kr. 50.000.- og er veittur til ađila sem sćkir sér ţjálfaramenntun eđa kynningu á íţróttaţjálfun erlendis.
Ađalfundur Umf. Selfoss var haldinn fimmtudaginn 5. maí. Á fundinum fékk fimleikadeild félagsins afhenta viđurkenningu frá Íţrótta- og Ólympíusmbandi Íslands sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ, fyrst deilda og félaga á Suđurlandi. Ţá voru kjörnir ţrír nýir heiđursfélagar ţeir Hafsteinn Ţorvaldsson, Kristján S. Jónsson og Tómas Jónsson. Ţórir Haraldsson var endurkjörinn formađur félagsins sem og framkvćmdastjórnin öll nema Sally Anne Vokes kom ný inn í stađ Steinunnar H. Eggertsdóttur.
Í mars s.l. lauk ţriggja ára samningi körfuknattleiksdeildar Umf. Selfoss og Hamars og var ákveđiđ ađ endurnýja hann ekki. Var sú ákvörđun tekin í fullri vinsemd beggja félaga. Hugsanlega verđur eitthvert samstarf áfram í yngri flokkum félaganna. Körfuknattleiksdeild Umf. Selfoss vinnur nú ađ undirbúningi fyrir starf nćsta vetrar. Ađalfundur deildarinnar verđur haldinn í Tíbrá mánudaginn 23. apríl kl. 20:30.
Ungmennafélag Selfoss hefur úthlutađ styrkjum úr afreksmannasjóđi sínum fyrir árangur ársins 2006. Deildir félagsins sendu inn umsóknir fyrir íţróttafólk sitt og var styrkjum síđan úthlutađ í samrćmi viđ reglur sjóđsins. Margir íţróttmenn félagsins hafa ná framúrskarandi árangri á árinu, sett Íslandsmet eđa unniđ Íslandsmeistaratitla í sínum flokkum og nokkrir leikiđ landsleiki fyrir Íslands hönd. Einnig hafa nokkrir veriđ valdir á landsliđsćfingar eđa í úrvalshópa í sínum aldursflokkum.
