
Sunnumótið, sem er kvennakeppni í kraftlyftingum, var haldið fyrir nokkrum vikum á Akureyri. Mótið er svokallað "kjötmót" þar sem keppendur mega aðeins nota belti fyrir bakið og vafninga fyrir hnén. Bryndís Ólafsdóttir, kraftlyftingardeild Umf. Selfoss, tók þátt í mótinu. Hún gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í réttstöðulyftu í flokknum 75-82,5 kg með því að lyfta 127,5 kg.