Beint á leiđarkerfi vefsins

Kraftlyftingar

Kraftlyftingar - RSS

24.11.2009 | Kraftlyftingar

Íslandsmeistaramót í réttstöđulyftu fór fram á Seflossi

Fyrsta mót kraftlyftingadeildar Umf. Selfoss, sem jafnframt var Íslandsmeistaramót í réttstöðulyftu, var haldið laugardaginn 21. nóv. s.l. í Toppsport á Selfossi. Þátttaka var mjög mikil eða 29 keppendur. Þetta er fyrsta mót deildarinnar, en deildin hefur verið að móta starfið í nýstofnaðri deild undanfarna mánuði. Daníel Geir var okkar eini keppandi á réttstöðumótinu og stóð hann sig vel. Vonandi verða fleirri að keppa fyrir hönd UMFS á nýju ári.

Kraftlyftingadeild UMFS hyggt halda innanfélagsmót á nýju ári og verða mót eins og bekkpressukeppni, curlkeppni, gripkeppni og margt fleira kynnt á nýju ári. Hvetjum við alla sterka Sunnlendinga til að skrá sig í deildina og sanna hvaða Sunnlendingur er sterkastur. Á nýju ári er einnig stefnt að því að ráða þjálfara og fara vel yfir undirstöðuatriðin í kraftlyftingum, ásamt því að þjálfa upp efnilega einstaklinga. 

Úrslit urðu þessi: 
María Guðsteinsdóttir Ármanni, sigraði örugglega í kvennaflokki með 170 kg í 75 Kg flokki.
Halldór Eyþórsson, Breiðablik, varð Íslandsmeistari karla með 240,0 kg í 82,5 kg flokki.
Guðmundur Erlingsson, Massi, gerði harða atlögu að titlinum. Hann lyfti 290 kg í +125 kg flokki, en rétt missti af 300 kg í síðustu tilraun og lenti í öðru sæti.
Í þriðja sæti lenti svo Júlían Jóhannsson, Ármanni, með 270 kg í 110,0 kg flokki drengja.
16 réttstöðumótsmet voru sett á mótinu og hafa þau verið uppfærð.

Stjórn kraftlyftingadeildar UMFS óskar öllum sigurvegurum og methöfum til hamingju með góðan árangur og þakkar Toppsport fyrir stuðninginn.

Kveðja frá Formanni
Bjarni Kristinsson

http://www.flickr.com/photos/27065120@N08/sets/72157622728868967/ 

http://www.kraft.is/


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta