Beint á leiđarkerfi vefsins

Kraftlyftingar

Kraftlyftingar - RSS

19.2.2010 | Kraftlyftingar

Íslandsmót í kraftlyftingum verđur 13. mars

Íslandsmótið í kraftlyftingum fyrir alla aldursflokka fer fram laugardaginn 13. mars nk. Kraftlyftingafélag Mosfellsbæjar hefur tekið að sér að halda mótið og fer það fram í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ.

Skráning er hafin og fer fram á sama hátt og á Íslandsmótinu í bekkpressu. Hvert félag skráir sína keppendur á eyðublað sem er að finna á www.kraft.is.

Best er að vista skjalið á tölvu, fylla út og vista undir öðru nafni og senda svo í tölvupósti á gry@gry.is
Mikilvægt er að kennitölur keppenda komi fram og hvort keppendur ætla að keppa í opnum flokki eða aldurstengdum flokki. Keppendur verða að ákveða það fyrirfram, en öldungur/unglingur sem kýs að keppa í opnum flokki getur samt sem áður sett met í sínum aldursflokki.

Skráningarfrestur er viku fyrir mót, en fólk er beðið að senda inn upplýsingar um keppendur eftir því sem þær berast, svo fljótlega sé hægt að sjá hve margir keppendur verða. Það skiptir miklu máli vegna skipulags og tímasetningar. Senda þarf listann inn fyrir tilsettan tíma. 
Þátttökugjald er 3.000 kr. og greiðist inn á reikning  0315-26-005704, kt. 570409-1820.

Ef mótið verður eins fjölmennt og vonast til er ljóst að margar hendur þurfa að vinna verkin. Farið er fram á að öll félög sem taka þátt bjóði fram sjálfboðaliða til starfa á mótinu og það væri mjög gott að fá nöfn þeirra sem fyrst.
Haldinn verður undirbúningsfundur með mótshaldara og öðrum starfsmönnum fljótlega og verkaskipting ákveðin.

Með tilhlökkun og góðri kveðju
Gry Ek, ritari KRAFT


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta