Beint á leiđarkerfi vefsins

Kraftlyftingar

Kraftlyftingar - RSS

30.4.2010 | Nýjustu fréttir

Grímur Hergeirsson nýr formađur Umf. Selfoss

Aðalfundur Ungmennafélags Selfoss var haldinn í gær í félagsheimilinu Tíbrá. Mjög góð mæting var á fundinum, en alls mættu 48 af 55 kjörnum fulltrúum, tveir heiðursfélagar, auk fleiri gesta. Lögð var fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom yfirlit yfir starf félagsins og deilda innan þess. Starfið 2009 var mjög öflugt og náðust margir frábærir árangrar bæði íþróttalega og félagslega. Rekstur félagsins gekk vel og voru flestar deildir reknar með rekstrarafgangi.

Nokkarar viðurkenningar voru veittar á aðalfundinum. Ágústa Tryggvadóttir, frjálsíþróttakona var útnefnd íþróttakona Umf. Selfoss 2009 og Sævar Þór Gíslason, knattspyrnumaður, íþróttakarl Umf. Selfoss 2009. Bergur Pálsson, júdómaður, fékk Björns Blöndal bikarinn fyrir frábær störf í þágu félagsins. Þá var taekwondodeild valin deild ársins og fékk hún UMFÍ bikarinn. Auk þess fengu Tómas Þóroddsson, Sebastian Alexandersson og Olga Bjarnadóttir sérstakar viðurkenningar fyrir góðan fréttaflutning úr starfinu. Einnig var Guðmundur Karl Sigurdórsson, ljósmyndari á Sunnlenska fréttablaðinu, heiðraður sérstaklega fyrir frábærar íþróttamyndir.

Axel Þór Gissurarson formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Grímur Hergeirsson kosinn nýr formaður félagsins. Auk þess kom Jóhannes Óli Kjartansson nýr inn í framkvæmdastjórn sem meðstjórnandi í stað Bergs Guðmundsonar. Aðrir í framkvæmdastjórn eru Hansína Kristjánsdóttir gjaldkeri, Sandra D. Gunnarsdóttir, ritari og Sveinn Jónsson meðstjórnandi.

ÖG


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta