Í gærkvöldi var haldinn fundur í Tíbrá með áhugafólki um kraftlyftingar. Á fundinn mættu m.a. fulltrúar frá stjórn Kraftlyftingasambands Íslands. Þar var kosin ný stjórn kraftlyftingadeildar Selfoss, en hana skipa Bryndís Ólafsdóttir formaður, Sigríður Júlía Wium Hallsdóttir gjaldkeri, Díana Rós Magnúsdóttir ritari og Einar Guðnason og Arnar Már Ólafsson meðstjórnendur.
Kraftlyftingadeildin var stofnuð fyrir ári síðan og fékk bráðabirgðaaðild að félaginu. Ekki náðist að koma starfhæfri stjórn á laggirnar þá og því var starfið lítið fyrsta árið. Með skipan nýrrar stjórnar vonast menn til að blása megi lífi í glæðurnar og efla veg kraftlyftinga á Selfossi.
Á fundinum var m.a. rætt um aðstöðu til lyftinga, en nokkuð vantar upp á að hún sé fullnægjandi á Selfossi. Margar íþróttagreinar nota lyftingar sem lið í styrktarþjálfun og því brýnt að bæta aðstöðuna. Einnig var rætt um hugsanlegt mótahald og kynningu íþróttarinnar.
ÖG
