Beint á leiðarkerfi vefsins

Kraftlyftingar

Kraftlyftingar - RSS

2.6.2010 | Kraftlyftingar

Bryndís með Íslandsmet í réttstöðulyftu

Bryndís_apríl_2010Sunnumótið, sem er kvennakeppni í kraftlyftingum, var haldið fyrir nokkrum vikum á Akureyri. Mótið er svokallað "kjötmót" þar sem keppendur mega aðeins nota belti fyrir bakið og vafninga fyrir hnén. Bryndís Ólafsdóttir, kraftlyftingardeild Umf. Selfoss, tók  þátt í mótinu. Hún gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í réttstöðulyftu í flokknum 75-82,5 kg með því að lyfta 127,5 kg. Gamla metið var 122,5kg en það átti Thelma Ólafsdóttir átti. Þetta er fyrsta Íslandsmetið í kraftlyftingum sem Selfyssingar setja. Við bætist að þetta er einnig met í aldursflokknum 40-49 ára. Á mótinu var einnig keppt í bekkpressu. Þar lyfti Bryndís 62,5 kg. Alls tóku 9 konur þátt og sú léttasta var undir 52kg.

Á næstunni



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta