Hvatagreiðslur - niðurgreiðslur á íþróttastarfi:
Sveitarfélagið Árborg greiðir niður íþróttastarf barna á 6-18 ára. Þannig á hvert barn sem á lögheimili í Árborg á aldrinum 6-18 ára rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg frá og með 1. september 2008. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 1ö vikur eða lengur.
Greiðslufyrirkomulagið er eftirfarandi:
- Foreldri/forráðamaður skráir barnið sitt í íþróttastarf og greiðir fyrir það hjá sínu félagi. Félagið gefur út kvittun sem staðfestingu á að greisðla hafi farið fram og á henni þarf að koma fram kennitala barnsins sem greitt er fyrir.
- Foreldri/forráðamaður fer með kvittunina í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar og afhendir hana þjónustufulltrúa ásamt upplýsingum um reiknnig sem leggja á hvatapeningana inn á.
- Gjaldkeri Sveitarfélagsins Árborgar greiðir síðan inn á reikning foreldris/forráðamanns.
