Æfingagjöld hjá Sunddeild Umf. Selfoss eru eftirfarandi:
Eirhópur 6-8 ára (f. 2001, 2002 og 2003) - 2.600 kr. á mán. (æf. 2x í viku)
Koparhópur 6-8 ára (f. 2001, 2002 og 2003) - 2.600 kr. á mán (æf. 2x í viku)
Bronshópur 8-10 ára (f. 1999, 2000 og 2001) - 3.000 kr. á mán (æf. 3x í viku)
Silfurhópur 8-13 ára (f. 1996, 1997, 1998, 1999, 2000 og 2001) - 4.000 kr. á mán (æf. 4x í viku)
Títanhópur 10-13 ára (f. 1996, 1997, 1998 og 1999) - 4.800 kr. á mán. (æf. 5x í viku)
Gullhópur - lengra komnir - 5.500 kr. á mán (æf. 5x í viku)
Systkinaafsláttur: 15% á annað barn, 25% á þriðja barn. Fjórða barn frítt.
Hvatagreiðslur - niðurgreiðslur á íþróttastarfi:
Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar sem auðveldar einstaklingum að sækja um ákveðna þjónustu rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.
Athugið að umsóknarhæft íþrótta- og/eða tómstundastarf þarf að vera námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Hægt er að nota hvatagreiðslurnar frá 1. febrúar til 31. janúar ár hvert. Fyrir árið 2010 er því hægt að sækja um til 31. janúar 2011. Hvatagreiðsla fellur niður fyrir árið 2010 hafi ekki verið sótt um fyrir þann tíma.
Mín Árborg - fyrirkomulag á hvatagreiðslum í gegnum íbúagátt Árborgar
Nánari skýring á lið 3:
Undirritaður mun taka saman og flokka umsóknir eftir íþróttagreinum og tómstundum. Síðan verður listinn sendur fulltrúa hvers félags og/eða deildar með tölvupósti til staðfestingar. Fulltrúi félagsins þarf þá aðeins að haka við nafn viðkomandi ef hann er skráður hjá félaginu/deildinni og hafi greitt jafnt eða meira en sú upphæð sem sótt er um. Þeir sem ekki eru skráðir hjá félaginu/deildinni eða hafa ekki greitt er ekki hakað við en ástæða höfnunar er sett í athugasemdadálk. Þegar búið er að fara yfir listann er hann sendur aftur á undirritaðan, bragi@arborg.is sem sér um að greiðslan komist til skila. Umsókn þeirra sem fengu neitun helst í gildi en er ekki greidd út fyrr en staðfesting hefur fengist frá viðkomandi félagi/deild. Félög og/eða deildir þurfa því ekki að gefa út kvittanir en geta samt notað hvatagreiðslurnar sem þrýsting á foreldra/forráðamenn til að ganga frá greiðslu æfinga- og/eða þátttökugjalda.
F.h. Sveitarfélagsins Árborgar
Bragi Bjarnason
Íþrótta- og tómstundafulltrúi
bragi@arborg.is
