Beint á leiðarkerfi vefsins

Farsíma- og tækjaöfnun Sunddeildar Umf. Selfoss



Sunddeild Umf. Selfoss safnar gömlum fartölvum og GSM símum sem ekki eru lengur í notkun á heimilum og hjá fyrirtækjum á Selfossi til fjáröflunar fyrir starfsemi deildarinnar. Deildin fær greitt fyrir þau tæki sem safnast en þau eru flutt út í endurnýtingu.

Fyrirtækið Græn framtíð (www.graenframtid.com) annast flutning á tækjunum  til viðurkenndra endurvinnslufyrirtækja erlendis sem tryggja endurnýtingu á þeim með ábyrgum hætti. Heilir símar og fartölvur verða nýttir áfram í þróunarlöndum og íhlutir úr ónýtum tækjum verða nýttir í annan búnað. Þá verður spilliefnum úr þeim eytt með löglegum hætti.

Skila má þeim búnaði sem er ekki lengur í notkun í Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss að Engjavegi 50 í þar til gerðan kassa. Við vonumst til þess að íbúar á Selfossi taki vel við sér; styrki deildina og stuðli að því að gömul raftæki öðlist framhaldslíf.


Á næstunni


arvirkinn.istrs.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta