Beint á leiđarkerfi vefsins

Sund

Sund - RSS

16.6.2010 | Sund

Hrólfur og Ólöf Eir stigahćst á Hérađsmóti HSK í sundi

Héraðsmót HSK í sundi fór fram mánudaginn 14. júní s.l. í Hveragerði. Sunddeild Umf. Selfoss sendi að þessu sinni fremur fáliðaða sveit enda flestir okkar sundmenn komnir í sumarfrí. Leikar fóru því þannig að Hamar sigraði mótið með nokkrum yfirburðum eða 128 stigum, Selfoss endaði í öðru sæti með 67 stig og Dímon rak lestina með 25 stig en frá þeim komu tveir keppendur.

14.6.2010 | Sund

Frábćr árangur hjá Ólöfu og Hrólfi á SH International

Um síðustu helgi kepptu Ólöf Eir Hoffritz og Hrólfur Laugdal Árnason á SH-Actavis international mótinu sem fram fór í Hafnafirði. Alls tóku 6 smáþjóðir þátt í mótinu eða: Lúxemborg, San Maríno, Andorra, Danmörk, Færeyjar  og Ísland.
Okkur til mikillar gleði náði Ólöf lágmörkum inná AMÍ (Aldursflokkamót Íslands) í 100m skriðsundi og hefur því tryggt sér rétt til að keppa í 3 greinum á því móti. Hana vantar aðeins 0,3  og 1,2 sekúndur í tveim öðrum sundum.

8.6.2010 | Sund

Tveir sundmenn fara á SH International

Um næstu helgi verður alþjóðlegt sundmót Sundfélags Hafnarfjarðar, SH International, haldið í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Sunddeild Umf. Selfoss sendir tvo sundmenn á mótið, þau Ólöfu Eir Hoffritz og Hrólf Laugdal Árnason. Mótið er gríðarsterkt og meðal annars synda margir úr íslenska landsliðinu á mótinu ásamt sundmönnum frá Andorra, Danmörku, Færeyjum, Lúxemborg og San Marínó auk sundmanna frá mörgum sterkustu félögum á Íslandi.

6.6.2010 | Nýjustu fréttir

Mjög góđur árangur á Akranesleikunum

Sunddeildin fór um helgina á Akranes og tók þátt í Akranesleikunum sem stóðu yfir í þrjá daga. Alls fóru fimm sundmenn frá Sunddeildinni á leikana. Ólöf Eir Hoffritz vann tvö gull og eitt brons. Hannes Höskuldsson vann sér inn eitt brons ásamt því að vera í 5., 6. og 7. sæti í hinum greinunum sínum. Alls var keppt í 12 greinum. Allir keppendurnir bættu sig.

2.6.2010 | Sund

Hérađsmóti HSK í sundi frestađ

Héraðsmóti HSK í sundi, sem halda átti í Hveragerði 10. júní hefur verið frestað til mánudagsins 14. júní. Þessi seinkun er vegna viðgerðar á lauginni í Hveragerði. Upphitun hefst kl. 17:15 og keppni kl. 18:00.
Skráningar skulu berast á  skrifstofu HSK í síðasta lagi kl. 24:00 miðvikudaginn 9. júní júní með tölvupósti á netfangið hsk@hsk.is  Nánari upplýsingar á www.hsk.is undir liðnum héraðsmót.


Á nćstunni


arvirkinn.istrs.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta