Beint á leiðarkerfi vefsins

Sund

Sund - RSS

18.2.2010 | Sund

Átta sundkrakkar kepptu á Gullmóti KR

Helgina 12.-14. febrúar kepptu 8 keppendur á  Gullmóti KR í laugardalslauginni. Mótið er næst stærsta barna- og unglingamótið í sundi. Verðlaunasæti Hannesar Höskuldssonar stóð upp úr árangri Selfyssinganna, en hann vann 200m flugsund sveina (12 ára og yngri) og varð annar í 100m flugsundi sveina. Hannes náði einnig fyrsta lágmarkinu sínu inn á AMÍ (Aldursflokka Meistaramót Íslands), en lágmörkunum ná yfirleitt bara vanir sundmenn sem æft hafa og keppt í nokkur ár. Það er lítið um að svo ungir sundmenn hafi kjark til þess að synda 200m flugsund og því er árangurinn enn sætari fyrir Hannes, ekki síst vegna þess að hann hefur varla stungið sér í 50m laug. Viðbrigðin við að fara úr 25m laug í 50m laug fyrir svo ungan sundmann eru gífurlega mikil.

Flestir sundmanna okkar bættu tíma sína. Hrólfur Laugdal Árnason hélt áfram að synda undir lágmörkum fyrir AMÍ, núna í 100m flugsundi, bringusundi og 200m fjórsundi. Hann stórbætti tíma sinn í 200m skriðsundi. Kári Valgeirsson keppti í 100m bringusundi í fyrsta skipti. Hann synti á tíma sem eru aðeins 4 sekúndur frá lágmarkinu á AMÍ, þjálfarann rak í rogastans og trúir enn ekki eigin augum. Hér er greinilega frábært efni á ferð sem er duglegur að mæta á æfingar og syndir þær af mikilli eljusemi. Aðrir keppendur voru þau: Anna E. Dalmay, Gíslína Skúladóttir, Rakel Ö. Gunnarsdóttir, Sigurður A. Jóhannesson og Sindri S. Axelsson.

Hannes_KR2010


Á næstunni


arvirkinn.istrs.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta