Beint á leiðarkerfi vefsins

Sund

Sund - RSS

1.3.2010 | Sund

Góðar bætingar á Selfossmeistaramótinu í sundi 2010

S.l. laugardag stungu 24 sundmenn sér til sunds í Sundhöll Selfoss á Selfossmeistarmótinu í sundi 2010.  Mikið var haft fyrir því að hafa mótið löglegt. Þrír dómarar frá Sundsambandi Íslands komu til að dæma ásamt Selfyssingunum  Ingibjörgu Laugdal og Sigurlínu Garðarsdóttur, en þær eru báðar löggiltir dómarar.  Tímaverðir voru gamlir sundmenn og –konur sem voru svo almennileg að aðstoða Sunddeildina við góða tímatöku.

Keppt er m.a. um veglegan farandsbikar sem veittur er fyrir besta árangur samkv. stigatöflu FINA. Í ár hreppti Hrólfur Laugdal Árnason bikarinn fyrir 100m skriðsund á tímanum 1:00.88 sem gefur 571 stig. Hann hefur bætt sig um 21 stig síðan 2009 þó svo heilt sundár sé eftir. Til samanburðar gefur heimsmet 1.000 stig.

Einnig voru veittir farand- og eignarbikarar fyrir tvö sund hjá einstaklingi í hverjum aldursflokki fyrir sig. Tvær bestu stigagjafirnar voru reiknaðar saman.

Kvennaflokkur: Anna Edit Dalmay

Stúlknaflokkur: Gíslína Skúladóttir

Piltaflokkur: Hrólfur Laugdal Árnason

Telpnaflokkur: Ólöf Eir Hoffritz

Sveinaflokkur: Hannes Höskuldsson

Erfitt var að bæta sig mikið þar sem flestir kepptu á sundmóti um síðustu helgi. Þó litu nokkrar bætingar dagsins ljós.

Hrólfur Laugdal bætti sig í fjórum greinum, Anna Edit og Sigurður Andri bættu sig í þremur greinum, Ólöf Eir og Rakel í tveimur, Gíslína um 2 sek. í 100m baksundi.  Nokkrir sundmenn voru að spreyta sig á sundum í fyrsta skipti og sumir að keppa í fyrsta sinn.  Þá voru yngri sundmennirnir að bæta verulega við sig í mörgum greinum.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Hannes, Hrólf, Gíslínu, Önnu og Ólöfu Eir með verðlaun sín.

Úrslit mótsins má skoða með því að smella hér.

Myndir frá mótinu má skoða með því að smella hér.


Arion banki styrkti Selfoss-
meistarmótið 2010


Á næstunni


arvirkinn.istrs.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta