Beint á leiðarkerfi vefsins

Sund

Sund - RSS

3.3.2010 | Sund

Aðalfundur Sunddeildarinnar: Þrír nýir stjórnarmenn

Aðalfundur Sunddeildar Umf. Selfoss var haldinn í gærkvöldi. Í skýrslu stjórnar kom fram að starfið hefur verið með ágætum á árinu og árangur iðkenda fer stöðugt batnandi. Rætt var um fjáraflanir, keppnisferðir, þjálfun, foreldra- og félagsstarf, búningamál o.fl. Reikningar deildarinnar voru lagðir fram ásamt fjárhagsáætlun þessa árs. Fram kom að Sunddeild var rekin með tapi síðasta ár eins og áætlanir gerðu ráð fyrir. Staða deildarinnar er góð þrátt fyrir taprekstur síðasta árs en gert er ráð fyrir hagnaði á þessu ári.

Á aðalfundinum var kosin ný stjórn en hana skipa Guðmundur Jóhannesson, Edda Björk Ólafsdóttir, Ingibjörg Elfa Laugdal Stefánsdóttir, Sigríður Runólfsdóttir og Sveinn Svavarsson. Þau Edda, Sveinn og Sigríður eru ný í stjórn. Í varastjórn voru kosnar Helga Sigurðardóttir og Sigurbjörg Björnsdóttir.

Eins og áður hafa konurnar flest ráð á hendi sér í Sunddeildinni eins og verið hefur um nokkurt skeið. Það fyrirkomulag hefur reynst deildinni vel.

 


Á næstunni


arvirkinn.istrs.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta