Sunddeildin fór um helgina á Akranes og tók þátt í Akranesleikunum sem stóðu yfir í þrjá daga. Alls fóru fimm sundmenn frá Sunddeildinni á leikana.
Ólöf Eir Hoffritz vann tvö gull og eitt brons. Hannes Höskuldsson vann sér inn eitt brons ásamt því að vera í 5., 6. og 7. sæti í hinum greinunum sínum.
Alls var keppt í 12 greinum. Allir keppendurnir bættu sig.
Ólöf Eir Hoffritz stórbætti sig í 200m skriðsundi og náði lágmarkinu inn á AMÍ þannig að nú er stutt í að hún komist undir það í 100m skriðsundi og baksundi. Hannes náði einnig lágmarki í 100m fjórsundi og þarf aðeins 5 sekúndur í 100m og 200m skriðsundi til að ná inn í þeim greinum.
Kári Valgeirsson synti 100m bringusund fjórum sekúndum undir Aldursflokkameistaramóts lágmarkinu og má því keppa á því móti ef hann hefur áhuga á. Þóri Gauti Pálsson synti 100m bringusund í fyrsta skipti. Sigurður Andri Jóhannesson bætti sig í þremur greinum af fjórum. Í 100m fjórsundi voru það 37 sekúndur. Hann reynir vonandi við lágmörkin á næsta ári aftur.
Alls hafa nú 4 iðkendur náð lágmörkunum á AMÍ en það er fjölgun um einn frá því í fyrra.

Sundmennirnir em fóru á Akranes, f.v.: Þórir Gauti Pálsson, Kári Valgeirsson, Hannes Höskuldsson, Ólöf Eir Hoffritz og Sigurður Andri Jóhannesson.
