Beint á leiðarkerfi vefsins

Sund

Sund - RSS

8.6.2010 | Sund

Tveir sundmenn fara á SH International

Um næstu helgi verður alþjóðlegt sundmót Sundfélags Hafnarfjarðar, SH International, haldið í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Sunddeild Umf. Selfoss sendir tvo sundmenn á mótið, þau Ólöfu Eir Hoffritz og Hrólf Laugdal Árnason. Mótið er gríðarsterkt og meðal annars synda margir úr íslenska landsliðinu á mótinu ásamt sundmönnum frá Andorra, Danmörku, Færeyjum, Lúxemborg og San Marínó auk sundmanna frá mörgum sterkustu félögum á Íslandi.

Ólöf Eir og Hrólfur eru nú að undirbúa sig af kappi fyrir Aldursflokkameistarmót Íslands (AMÍ) sem verður í Hafnarfirði í lok mánaðarins en eftir það fara þau í frí þar til æfingar hefjast að nýju um mánaðamótin ágúst/september. Auk þeirra hafa þeir Hannes Höskuldsson og Kári Valgeirsson náð lágmörkum fyrir AMÍ.


Á næstunni


arvirkinn.istrs.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta