Beint á leiđarkerfi vefsins

Sund

Sund - RSS

16.6.2010 | Sund

Hrólfur og Ólöf Eir stigahćst á Hérađsmóti HSK í sundi

Héraðsmót HSK í sundi fór fram mánudaginn 14. júní s.l. í Hveragerði. Sunddeild Umf. Selfoss sendi að þessu sinni fremur fáliðaða sveit enda flestir okkar sundmenn komnir í sumarfrí. Leikar fóru því þannig að Hamar sigraði mótið með nokkrum yfirburðum eða 128 stigum, Selfoss endaði í öðru sæti með 67 stig og Dímon rak lestina með 25 stig en frá þeim komu tveir keppendur.
Sundmennirnir okkar stóðu sig hins vegar mjög vel og þau Hrólfur Laugdal Árnason og Ólöf Eir Hoffritz urðu stigahæstu sundmenn mótsins í karla- og kvennaflokki. Þau sigruðu bæði allar sínar greinar, þrjár talsins, og höluðu inn 18 stig hvort. Hrólfur vann auk þess besta afrek mótsins en hann hlaut 481 FINA-stig fyrir 50m flugsund.
Ólöf Eir synti 100m baksund á tímanumj 1:25,34 og náði þar með lágmörkum fyrir AMÍ í þeirri grein. Frábær árangur það.

Úrslit mótsins eru komin á úrslitasíðuna okkar og þar er hægt að sjá alla tíma.


Á nćstunni


arvirkinn.istrs.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta