Á fundi aðalstjórnar Umf. Selfoss sem haldinn var 7. september 2011 var ákveðið að félagið myndi veita systkinaafslátt á milli deilda fyrir tímabilið september - desember 2011 og janúar - maí 2012.
Systkinaafsláttur er 1.000 kr. á mánuði fyrir fyrir 2. og 3. barn og gildir fyrir fjölskyldur þar sem börn æfa ekki öll sömu íþróttagrein. Afslátturinn gildir einnig fyrir börn sem æfa fleiri en eina íþróttagrein.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri á skrifstofu Umf. Selfoss.
