Beint á leiðarkerfi vefsins

Taekwondó

Taekwondó - RSS

23.3.2008 | Taekwondó

Fyrsti svartbeltingur Taekwondo deildar Selfoss

daniel_jensÞann 22. mars síðastliðinn þreytti Daníel Jens Pétursson svartbeltapróf 1. dan í taekwondo. Einnig þreytti þjálfari Daníels, og yfirþjálfari taekwondodeildar Umf. Selfoss Magnea Kristín Ómarsdóttir 2.dan próf og stóðust þau bæði með mikilli prýði.

20.3.2008 | Taekwondó

17 manns í beltaprófi á Skírdag

Á skírdag fór 17 manna hópur frá taekwondodeild Selfoss og þreyttu beltapróf í Reykjavík. Master Sigursteinn Snorrason 5. dan gráðaði nemendur allt frá gulri rönd upp í rautt belti. Er skemmst frá því að segja að allir nemendur Umf. Selfoss stóðust prófið með prýði.

18.3.2008 | Taekwondó

Gull og silfur á Íslandsmóti í taekwondo

Aron Bragason 13 ára vann til gull verðlauna á Íslandsmótinu í Sparring í minior flokki. Daníel Jens Pétursson 17 varð í öðru sæti í junior flokki. Daníel Jens var einnig valinn keppandi mótsins í junior flokki.

5.3.2008 | Nýjustu fréttir

Komum Selfossi á kortið í Lífshlaupinu

Lífshlaupið_lógóLífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Selfyssingar eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Lýðheilsustöð gefur í fyrsta skipti út ítarlegar ráðleggingar um hreyfingu nú í upphafi árs 2008. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Inn á vef Lífshlaupsins er hægt að velja um þrjár leiðir.


Á næstunni



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta