Beint á leiđarkerfi vefsins

Taekwondó

Taekwondó - RSS

28.12.2009 | Nýjustu fréttir

Uppskeruhátíđ ÍTÁ 2009 - ţriđjudaginn 29. des.kl. 20:00

Árborg_merkiHin árlega uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands þriðjudaginn 29. des. kl. 20:00. Þar verða afhentir styrkir úr Afreks- og styrktarsjóðum Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf Selfoss, Íþf. Suðra og Íþr. FSu. Hvatningarverðlaun verða veitt, afhentir styrkir fyrir afburðaárangur og jafnframt tilkynnt um kjör íþróttakonu og íþróttakarls árborgar 2009. Boðið verður upp á skemmtiatriði og kaffiveitingar. Allir eru velkomnir.

13.12.2009 | Taekwondó

59 einstaklingar ţreyttu beltapróf í Iđu á laugardaginn

Á laugardaginn þreyttu 59 einstaklingar beltapróf í Iðu. Allir iðkendur stóðu sig með prýði og voru deildinni til mikils sóma. Master Sigursteinn Snorrason 5. dan gráðaði hópinn og var hann mjög ánægður með árangurinn og sérstaklega með þjálfunina í vetur. Alls tóku 29 iðkendur próf fyrir 10. gráðu sem einstaklega ánægjulegt fyrir deildina og ber vitni um þá miklu grósku og vöxt sem er í deildinni.

24.11.2009 | Nýjustu fréttir

Hádegisfundur ÍSÍ - Ungt fólk 2009

ÍSÍ_merkiHádegisfundur ÍSÍ verður haldinn föstudagurinn 27. nóv. Jón Sigfússon framkvæmdastjóri og Álfgeir Logi Kristjánsson rannsóknarstjóri hjá Rannsóknum og Greiningu við HR munu fara yfir rannsóknina Ungt fólk 2009 og rýna í þá þætti sem snúa að íþróttum og/eða íþróttaiðkun. Fyrirlesturinn verður í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00-13.00. Hann er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.

5.11.2009 | Nýjustu fréttir

Ungmennaţing Árborgar verđur í Pakkhúsinu 8. nóvember

UngmennaþingSunnudaginn 8. nóvember kl. 14:00 verður ungmennaþing Árborgar haldið í Pakkhúsinu, ungmennahúsi Árborgar að Austurvegi 2b, (fyrir aftan bókasafnið). Þingið er ætlað öllum ungmennum í Árborg á aldrinum 13 - 30 ára. Markmið þingsins er að skoðanir ungmenna úr öllum byggðarkjörnum Árborgar komi fram. Niðurstöður þingsins verða síðan afhent bæjarstjórn Árborgar.  Yfirskrift þingsins er: "Ekki sitja heima og röfla, komdu þinni skoðun á framfæri". Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Gylfi Þorkelsson, bæjarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundanefndar munu ávarpa þingið. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir

2.11.2009 | Taekwondó

4 gull,5 silfur og 3 brons hjá taekwondokeppendum Selfoss

Nítján keppendur frá Selfossi tóku þátt í firnasterku bikarmóti í Taekwondo sem haldið var í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ um helgina. Af þeim fóru 12 á pall í sínum aldurs- og þyngdarflokkum. 4 gull, 5 silfur og 3 brons unnust.

23.10.2009 | Nýjustu fréttir

Góđur stuđningur úr Verkefnasjóđi HSK

HSK_merkiStjórn Verkefnasjóðs HSK tilkynnti nýlega úthlutun úr sjóðnum í ár. Alls bárust 63 umsóknir til sjóðsins og af þeim fengu 55 úthlutað styrk. Umf. Selfoss sendi inn 29 umsóknir og fengu 26 styrk. Góður fengur er í stuðningi verkefnasjóðsins sem kemur sér vel fyrir félög og einstakar deildir þegar kreppir að á auglýsinga- og styrkjamarkaði.

16.10.2009 | Nýjustu fréttir

Fjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun hefst 2. nóvember

ÍSÍ_merkiHaustannarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Um er að ræða 1. stig almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið tekur 8 vikur og jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu. Námið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa á þjálfun í einhverri íþróttagrein. Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar.  Lokaverkefni verður ekki skilað fyrr en á nýju ári. 

22.9.2009 | Taekwondó

Taekwondo á Stokkseyri

Taekwondodeild Umf. Selfoss Selfoss hefur hafið samstarf við Ungmennafélag Stokkseyrar um taekwondokennslu. Æfingar verða í íþróttahúsinu Stokkseyri og eru öllum opnar frá 1. bekk grunnskóla og upp í 99 ára. Taekwondo er 1000 ára gömul íþrótt sem byggir á mikilli brennslu, þolæfingum, teygjum og að sjálfsögðu sjálfsvörn. Taekwondo hentar báðum kynjum. Æfingar hefjast mánudaginn 28. september kl.17:00. Allir eru velkomnir í prufutíma í stuttbuxum og bol. Yfirkennari er Daníel Jens Pétursson 1. dan og meistari er Sigursteinn Snorrason 5. dan. Nánari upplýsingar  veita Heiða s. 896 8440 og Pétur s. 861 9010.

30.8.2009 | Taekwondó

Taekwondo ćfingar hefjast 31. ágúst - innritun á stađnum

Fyrsta æfing taekwondodeildar á haustönn verður mánudaginn 31. ágúst sæmkvæmt æfingatöflu. Æfingatíma má sjá hér að neðan.

25.8.2009 | Taekwondó

Ćfingar taekwondodeildar á haustönn hefjast á mánudag

Æfingar taekwondodeildar á haustönn hefjast mánudaginn 31. ágúst skv. æfingatöflu.  Sjá nánar hér...

14.8.2009 | Nýjustu fréttir

Veglegir styrkir frá heiđursfélaga

Hafst_03Fimmtudagskvöldið 13. ágúst var haldið veglegt hóf í Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss. Það var Hafsteinn Þorvaldsson, heiðursfélagi Umf. Selfoss, sem stóð fyrir hófinu. Hófið var m.a. haldið til að heiðra minningu eiginkonu hans Ragnhildar Ingvarsdóttur sem hefði orðið 80 ára þennan dag. Auk fjölskyldu Hafsteins mættu í hófið fulltrúar sjö deilda innan Umf. Selfoss, formaður Umf. Biskupstungna, formaður Umf. Vöku og formaður og framkvæmdastjóri HSK. Hafsteinn afhendi þessum aðilum, tíu talsins, peningastyrk að upphæð 100.000 kr. hver.

4.8.2009 | Nýjustu fréttir

Selfoss útifánar til sölu á skrifstofunni

Lógó SelfossFyrir nokkru kom upp sú hugmynd að bjóða til sölu Selfoss útifána. Þá gætu menn flaggað heima hjá sér á leikdögum eða þegar eitthvað er um að vera hjá félaginu. Nú höfum við komið hugmyndinni í framkvæmd. Hægt er að kaupa fána (1x1,5m) á skrifstofu félagsins. Hvítir fánar með vínrauðu Selfossmerki kosta 4.500 kr. og vínrauðir fánar með hvítu merki kosta 7.500 kr. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins s. 482 2477 eða hjá framkvæmdastjóra s. 897 6323.

2.7.2009 | Nýjustu fréttir

Styttist í Landsmót UMFÍ á Akureyri

Landsmót_UMFÍ_2009Nú styttist óðum í Landsmót UMFÍ, en mótið verður haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí næstkomandi. Eyjafjörður mun væntanlega skarta sínu fegursta og verður án efa gaman að koma þangað. Undirbúningur fyrir mótið er á lokastigi. Heimamenn hafa lagt mikinn metnað í mótið og verður öll aðstaða til fyrirmyndar. HSK mun senda öflugt keppnislið á Landsmótið og tekur þátt í 16 af 20 keppnisgreinum. Margir Selfyssingar eru í liði HSK, en alls munu um 200 keppendur víðs vegar af Suðurlandi keppa fyrir sambandið. Í veglegu Landsmótsblaði HSK, sem fylgir með Sunnlenska fréttablaðinu í dag, má sjá lista yfir alla keppendur.

1.7.2009 | Nýjustu fréttir

Góđ ađsókn í íţrótta- og útivistarklúbbi barna

Íþróttaklúbbur_4Starfsemi íþrótta-og útivistarklúbbsins í sumar hefur gengið mjög vel. Námskeiðin sem eru fjölbreitt hafa verið mjög vel sótt og fá börnin að prófa hinar ýmsu greinar undir leiðsögn góðra þjálfara. Farið er í handbolta, frjálsar, júdó, fimleika, fullt af leikjum, í sund og svo er alltaf skemmtielg lokaferð í seinni vikunni. Hvert námskeið stendur í tvær vikur en einnig er hægt að hafa börnin í eina viku í senn. Meðfylgjandi myndir eru úr síðustu lokaferð.

11.6.2009 | Taekwondó

Sumarćfingar í taekwondo byrjađar!

Sumaræfingarnar byrjuðu með hvelli í kvöld þar sem 24 iðkendur mættu á fyrstu æfinguna, sem er frábært. Þeir sem æfa í sumar og greiða æfingagjöld, fá 50% afslátt á sumanámskeiði hjá master Sigursteini, sem hefjast í næstu viku.

11.6.2009 | Taekwondó

Ćfingar í taekwondo í isumar

Sumaræfingar hjá taekwondodeild verða í sumar á mánudögum og fimmtudögum í Gagnheiði kl. 19:00-20:00. Sérstakt sumarnámskeið verður haldið 15.-25. júní fyrir krakka á aldrinum 8 til 14 ára. Sjá nánar í auglýsingu hér fyrir neðan.

9.6.2009 | Nýjustu fréttir

Velferđarsjóđur barna styrkir Íţrótta- og útivistarklúbbinn

velferðarsjóður barnaÍþrótta- og útivistarklúbbur Umf. Selfoss hlaut í gær myndarlegan styrk úr Velferðarsjóði barna. Styrkurinn verður notaður til að niðurgreiða námskeiðin sem haldin verða í sumar. Er það m.a. gert til að tryggja börnum jafnan aðgang að námskeiðunum. Sveitarfélagið Árborg leggur verkefninu til fjármagn sem er liður í þjónustusamningi við Ungmennafélagið. Auk þess tengist það Vinnuskóla Árborgar. Klúbburinn er samstarfsverkefni allra deilda félagsins og veitir um 17 ungmennum vinnu í sumar.

26.4.2009 | Taekwondó

Selfoss vann til 20 verđlauna á TSH-mótinu á Selfossi

Selfoss vann til 20 verðlauna á mjög vel heppnuðu TSH móti í Iðu um helgina. Selfoss fékk 2 gull, 9 silfur og 9 brons sem er okkar besti árangur til þessa á annars mjög sterku móti. Nánari skiping verðlauna verður birt hér á heimasíðunni á morgun.

19.4.2009 | Taekwondó

Vel heppnuđ stelpuhelgi hjá taekwondodeild

Sjálfsvarnar námskeið taekwondodeilda, sem eingöngu var ætluð stelpum á öllum aldri, heppnaðist gríðarlega vel. Alls tóku 25 stelpur þátt þar sem farið var yfir grunnþætti sjálfsvarnarlistarinnar taekwondo.

15.4.2009 | Taekwondó

Sigursteinn og Snorri í frćgđarhöll Taekwondo

Feðgarnir Snorri Hjaltason, heiðursformaður Taekwondosambands Íslands og Sigursteinn Snorrason, landsliðsþjálfari í sparring  , fengu viðurkenningu frá samtökunum Frægðarhöll taekwondo íþróttarinnar (THE OFFICIAL TAEKWONDO HALL OF FAME®) á föstudaginn langa og voru þá teknir inní frægðarhöll taekwondo íþróttarinnar. Þeir eru fyrstu Norðurlandabúarnir og einir af fáum Evrópubúum sem hafa hlotið þessa miklu viðurkenningu fyrir störf sín.

Þess má geta að Master Sigursteinn Snorrason hefur umsjón með þjálfun taekwondodeildar Selfoss og félag hans Ssangyoung er móðurfélag deildarinnar.Einnig er haldin mótaröð sem kallast TSH sem stendur fyrir Trésmiðja Snorra Hjaltasonar, sem er aðalstyrktaraðili taekwondo á Íslandi.

13.4.2009 | Taekwondó

Námskeiđ í sjálfsvörn fyrir konur/stelpur á öllum aldri

Námskeið í sjálfsvörn  fyrir konur/stelpur á öllum aldri verður haldið helgina 18.-19.apríl.

5.4.2009 | Taekwondó

Ćfingatímar taekwondodeildar um páskana

Síðasta æfing hjá taekwondodeild fyrir páskafrí verður mánudaginn 6. apríl á venjulegum tíma. Fyrsta æfing eftir páska verður miðvikudaginn 15. apríl. Gleðilega páska!

20.3.2009 | Taekwondó

3 silfur og 4 brons á Íslandsmeistaramóti í Taekwondo

7 af 8 keppendum á verlaunapall á Íslandsmeistaramóti í Taekwondo sem fram fór í Iðu um síðustu helgi.

 

15.3.2009 | Taekwondó

Beltapróf fór fram í Iđu um helgina

Alls þreyttu 43 einstaklingar beltapróf í Iðu um helgina og stóðust allir prófið með glans. Þeir iðkendur sem eldri eru fengu óvænt en skemmtilegt próf því hluti prófsins fór fram utandyra þar sem fólk gerði form skó og sokkalaust í snjónum. Einnig brutu hærribeltingarnir spítur utandyra og allar armbeygjur voru gerðar úti. Þetta átti að sýna að við getum ekki alltaf átt von á árás við bestu aðstæður, heldur einnig illa klædd.

11.3.2009 | Taekwondó

Íslandsmeistaramót í sparring í Iđu 14. mars.

TSI_logoAlls eru 96 keppendur skráðir á Íslandsmeistaramót TKÍ í sparring sem fer fram í Iðu 14. mars. Keppendurnir koma frá 9 félögum víðs vegar af landinu. Keppt verður í +30 ára flokki í fyrsta sinn og hafa nokkrir keppendur skráð sig í þann flokk, bæði konur og karlar. Einnig verður beltapróf á sunnudeginum þar sem 46 iðkendur frá Selfossi þreyta próf.

 

7.3.2009 | Taekwondó

Daníel Jens valinn fyrirliđi í landsliđi Íslands í taekwondo juniora & -21

Daníel_Jens_2009Daníel Jens Pétursson hefur verið valinn til að vera fyrirliði í landsliði Íslands í taekwondo í flokki juniora & -21 árs. Valið fór fram eftir úrtökuæfingar landsliðsins. Daníel Jens hefur undanfarin ár æft með landsliðinu, fyrst unglingalandsliðinu og síðan A-landsliðinu.

3.3.2009 | Taekwondó

Taekwondodeild útnefnd fyrirmyndardeild ÍSÍ

Fyrirmyndarlogo_2008Á héraðsþingi HSK sem haldið var á Hvolsvelli á laugardaginn fékk taekwondodeild Umf. Selfoss viðurkenningu sem fyrirmyndardeild ÍSÍ. Er þetta fimmta deildin innan félagsins sem lýtur þessa útnefningu. Þrettán fulltrúar mættu á þingið frá Umf. Selfoss. Selfoss varð sitgahæsta félag innan HSK annað árið í röð og fimleikadeildin fékk foreldrabikar HSK. Þá var Tómas Jónsson heiðursfélagi Umf. Selfoss útnefndur öðlingur ársins.

3.2.2009 | Taekwondó

Master Cesar Rodriguez 5. dan međ ćfingar alla miđvikudaga

Master Cesar Rodriguez 5. dan mun sjá um allar æfingar á miðvikudögum hjá taekwondodeildinni í vetur. Kiosaním Daníel Jens mun stunda æfingar hjá master Sigursteini Snorrasyni landliðsþjáfara á miðvikudögum í vetur.

1.2.2009 | Nýjustu fréttir

Tvö gull, sjö silfur og fimm bronsverđlaun hjá taekwondodeildinni!

Mjög góður árangur okkar fólks á öðru TSH mótinu í TSH mótaröðinni, en mótið fór fram í Keflavík um helgina. Alls fóru 30 keppendur frá Selfossi og stóðu sig allir mjög vel og voru félagi sínu til mikils sóma.

22.1.2009 | Taekwondó

NM í Taekwondo fer fram um helgina

NM í Taekwondo fer fram um helgina í íþróttahúsi Fram við Safamýri. Keppni hefst á laugardagsmorgun kl. 9:00, en viktun og skráning er á föstudag kl. 18:00. Dagskrá mótsins má sjá hér...

20.1.2009 | Taekwondó

Daníel Jens keppir fyrir Íslands hönd á NM í Taekwondo

Daníel Jens Pétursson, yfirþjálfari Taekwondodeildar Umf. Selfoss keppir fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu sem haldið verður í Fram-heimilinu Safamýri, laugardaginn 24. janúar. Mótið hefst kl. 9:00.

14.1.2009 | Taekwondó

Ćfingar međ Master Cesar Rodriguez

Næstkomandi sunnudag, 18. janúar, verða taekwondo æfingabúðir með master Cesar Rodriguez í íþróttahúsinu Gagnheiði 3. Æfingarnar eru iðkendum að kostnaðarlausu og eru sem flestir hvattir til að nýta sér þær.

14.1.2009 | Nýjustu fréttir

Sýndu hvađ í ţér býr

NámskeiðsteikningMiðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar... 

9.1.2009 | Nýjustu fréttir

Taekwondodeildin lćkkar ćfingagjöld

Vegna efnahagsástandsins hefur stjórn taekwondodeildar UMFS ákveðið að lækka æfingagjöld iðkenda um 10% á vorönn. Gjaldið var áður 16.500 kr., en verður nú 15.000 kr. Systkinaafsláttur er áfram 20%, foreldri fær 50% afslátt og ef 2 börn æfa fær annað foreldri frítt. (3.000 kr á mánuði fyrir 3 æfingar í viku).

6.1.2009 | Taekwondó

Taekwondo ćfingar hafnar

Starfið á vorönn er nú komið á fullt hjá taekwondo-deildinni. Æfingatímar eru þeir sömu og áður (sjá æfingatöflu). http://umfs.is/taekwondo/aefingatimar-taekwondo/  Sjáumst öll hress á nýju ári. Nýir iðkendur velkomnir og munið að það kostar ekkert að prufa. Nóg er að mæta með stuttbuxur og bol.


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta