Beint á leiđarkerfi vefsins

Taekwondó

Taekwondó - RSS

14.8.2009 | Nýjustu fréttir

Veglegir styrkir frá heiđursfélaga

Fimmtudagskvöldið 13. ágúst var haldið veglegt hóf í Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss. Það var Hafsteinn Þorvaldsson, heiðursfélagi Umf. Selfoss, sem stóð fyrir hófinu. Hófið var m.a. haldið til að heiðra minningu eiginkonu hans Ragnhildar Ingvarsdóttur sem hefði orðið 80 ára þennan dag. Auk fjölskyldu Hafsteins mættu í hófið fulltrúar sjö deilda innan Umf. Selfoss, formaður Umf. Biskupstungna, formaður Umf. Vöku og formaður og framkvæmdastjóri HSK. Hafsteinn afhendi þessum aðilum, tíu talsins, peningastyrk að upphæð 100.000 kr. hver.

Hafsteinn flutti skelegga ræðu þar sem hann sagði frá ferli sínum og kom m.a. inn á upphafsár sín í ungmennafélagshreyfingunni og tengsl sín við hana æ síðan. Að lokinni afhendingu fluttu stutt þakkarávörp Guttormur Bjarnason, formaður Umf. Biskupstungna, Haraldur Einarsson, formaður Umf. Vöku, Örn Guðnason, framkvæmdastjóri Umf. Selfoss og Gísli Páll Pálsson, formaður HSK. Sérstakir heiðursgestir kvöldsins voru þau Sigurður Jónsson, fyrrverandi formaður Umf. Selfoss og kona hans Esther Óskarsdóttir.

Hér að neðan eru nokkrar myndir sem teknar voru í hófinu.
ÖG

Hafst_06 Hafst_11

Hafst_18 Hafst_20

hafst_23


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta