Beint á leiđarkerfi vefsins

Taekwondó

Taekwondó - RSS

2.11.2009 | Taekwondó

4 gull,5 silfur og 3 brons hjá taekwondokeppendum Selfoss

Nítján keppendur frá Selfossi tóku þátt í firnasterku bikarmóti í Taekwondo sem haldið var í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ um helgina. Af þeim fóru 12 á pall í sínum aldurs- og þyngdarflokkum. 4 gull, 5 silfur og 3 brons unnust. 

Davíð Arnar Pétursson, Ísak Máni Stefánsson, Sigurjón Eiríksson og Karítas Gunnarsdóttir unnu gullverðlaun og voru öll taplaus í sínum bardögum. Sifurverðlaun hlutu Ingimar Örn Sveisson, Sindri Ragnarsson, Aron Bragason, Daníel Jens Pétursson og Bjarnheiður Ástgeirsdóttir. Bronsverðlaun hlutu Dagný María Pétursdóttir, Logi Jökulsson og Brynjólfur Ingvarsson. Allir keppendur stóðu sig mjög vel bæði í Poomsae og Sparring. Haft var orð á því hve miklum framförum allir í Selfossliðinu höfðu tekið og hve samstillur hópurinn var, bæði yngri og eldri. 

Kveðja Stjórnin


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta