Beint á leiðarkerfi vefsins

Taekwondó

Taekwondó - RSS

5.11.2009 | Nýjustu fréttir

Ungmennaþing Árborgar verður í Pakkhúsinu 8. nóvember

Sunnudaginn 8. nóvember kl. 14:00 verður ungmennaþing Árborgar haldið í Pakkhúsinu, ungmennahúsi Árborgar að Austurvegi 2b, (fyrir aftan bókasafnið). Þingið er ætlað öllum ungmennum í Árborg á aldrinum 13 - 30 ára.

Markmið þingsins er að skoðanir ungmenna úr öllum byggðarkjörnum Árborgar komi fram. Niðurstöður þingsins verða síðan afhent bæjarstjórn Árborgar.

Yfirskrift þingsins er: "Ekki sitja heima og röfla, komdu þinni skoðun á framfæri"

Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Gylfi Þorkelsson, bæjarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundanefndar munu ávarpa þingið.

Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir

Ungmennaráð Árborgar
Fannar Freyr Magnússon, Vala Hauksdóttir, Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir , Hrefna Björg Ragnarsdóttir , Íris Erla Gísladóttir, Dagur Fannar Magnússon og Kolbrún Lilja Guðnadóttir.

Ungmennaþing


Á næstunni



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta