Beint á leiðarkerfi vefsins

Taekwondó

Taekwondó - RSS

13.12.2009 | Taekwondó

59 einstaklingar þreyttu beltapróf í Iðu á laugardaginn

Á laugardaginn þreyttu 59 einstaklingar beltapróf í Iðu. Allir iðkendur stóðu sig með prýði og voru deildinni til mikils sóma. Master Sigursteinn Snorrason 5. dan gráðaði hópinn og var hann mjög ánægður með árangurinn og sérstaklega með þjálfunina í vetur. Alls tóku 29 iðkendur próf fyrir 10. gráðu sem einstaklega ánægjulegt fyrir deildina og ber vitni um þá miklu grósku og vöxt sem er í deildinni. Æfingar halda áfram út þessa viku og verður síðasta æfing fyrir jól á næstkomandi föstudag.

Stjórn Taekwondodeildar Ungmennafélags Selfoss þakkar öllum iðkendum og aðstandendum þeirra fyrir ánægjulegann dag í Iðu á laugardaginn. Einnig langar stjórninni að þakka Guðjóni Emilssyni og starfsfólki hans fyrir þeirra frábæra viðmót og hjálpsemi í okkar garð.

Kveðja stjórn Taekwondodeildar UMFS


Á næstunni



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta