Taekwondo-æfingar eru byrjaðar á fullu á nýju ári. Æfingarnar hófust síðastliðinn föstudag og það var föngulegur hópur eldri iðkenda sem og nýrra sem mætti. Taekwondodeildin hlaut hvatningarverðlaun ÍTÁ fyrir framúrskarandi starfsemi á árinu 2009. Þetta er okkur í stjórninni mikil hvatning til að gera enn betur á árinu 2010 og jafnframt mikill heiður af þessari nafnbót. Það er von okkar að allir eldri iðkendur sjái sér fært að æfa hjá okkur í ár og einnig viljum við bjóða nýja iðkendur sérstaklega velkomna til okkar.
Hér má sjá æfingatímana hjá deildinni:
Börn lægri belti (byrjendur og gul rönd)
Mánudaga: 17-17:45
Miðvikudaga: 17-18
Föstudaga: 17-18
Börn hærri belti (gult belti og hærra)
Mánudaga: 17:45-18:30
Miðvikudaga: 18-19
Föstudaga: 18-19
Fullorðnir lægri belti
Mánudaga: 18:30-19:30
Miðvikudaga: 19-20
Föstudaga: 19-20
Fullorðnir hærri belti
Mánudaga: 18:30-19:30
Miðvikudaga: 20-21
Föstudagar: 20-21
Kveðja Stjórnin

