Taekwondodeild UMFS náði frábærum árangri á BS bikarmóti III sem haldið var í Iðu um liðna helgi. Keppendur frá Selfossi og Stokkseyri sópuðu að sér verðlaunum á mótinu.
Þetta mót færði Selfossi í 3. sæti í stigakeppni félaganna. Stefnt er að því að gera enn betur á næsta ári.
Úrslitin frá mótinu má nálgast á heimasíðu deildarinnar http://tkd-selfoss.is
Kveðja stjórnin

