Beint á leiđarkerfi vefsins

Taekwondó

Taekwondó - RSS

8.7.2010 | Taekwondó

Taekwondo útilegan 16.-18. júlí

Þá er komið að því að blása til fyrstu taekwondo-útilegunnar. Útilegan verður að Brautarholti á Skeiðum, á tjaldstæðinu þar. Fyrir þá sem ekki vita hvar Brautarholt er þá stendur það við veginn upp að Flúðum. Þar er fyrirtaks aðstaða fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla eins og hentar hverjum og einum. Útilegan er hugsuð fyrir iðkendur og fjölskyldur þeirra og vini. Farið verður í leiki mað krökkunum og haldin keppni milli fullorðinna og barna í hinum ýmsu greinum s.s. pokahlaupi, reyptog...

Á staðnum er íþróttahús sem við höfum til afnota og við munum vera með æfingar fyrir ALLA jafnt iðkendur sem og fjölskyldur þeirra.

Einnig er fín sundlaug á staðnum.

Fyrsta æfingin verður á föstudagskvöldinu um kl. 21 þegar allir eru komnir. Þar verður mikið sprellað og eitthvað við allra hæfi.

Á laugardeginum munum við verða með 2 æfingar. Sú fyrri  kl. 11:00-12:00 og sú síðari kl. 15:00 sem verður opin fyrir alla sveitunga og nærsveitamenn sem og ferðafólk. Sú æfing er hugsuð fyrst og fremst sem kynning á taekwondo.

Á sunnudeginum verður æfing kl. 13:00.

Eftir æfingarnar á laugardeginum munum við fara í leiki með börnunum og keppa við þau í m.a. reiptogi, pokahlaupi og ýmsu fleiru. Ef fólk hefur hugmyndir um fleiri leiki eða sprell þá endilega látið okkur vita.

Þeir sem eiga hljóðfæri og kunna að spila á þau, endilega koma með þau með sér.

Verð fyrir herlegheitin eru 3.000 kr. fyrir tjaldstæði og 1.000 kr. pr. mann (fyrir leigu á íþróttahúsinu), þó aldrei meira en 5.000 kr. pr. fjölskyldu.

Gott væri ef fólk léti okkur vita hversu margir ætla að mæta. Mæting á tjaldstæðið á föstudeginum er frá kl. 12:00 eða eins og hverjum og einum hentar best.

Hlökkum til að sjá ykkur sem allra flest og látum þetta verða upphafið að árlegum taekwondo-útilegum.

Allar nánari upplýsingar gefa: 
Pétur í síma 861-9010 peturmj@internet.is  og
Heiða í síma 896-8440 heidaast@internet.is


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta