Beint á leiðarkerfi vefsins

Taekwondó

Taekwondó - RSS

3.9.2010 | Taekwondó

Chloe Bruce sýnir bardagalistir í Iðu 18. september

Þann 18. september kemur á Selfoss þekkt bandarísk kona, Chloe Bruce að nafni, og verður með sýningu í Iðu ásamt systur sinni í ýmsum bardagalistum. Hún verður m.a. með teygjuæfingar, sýningu, parkour, tricking, fimleika og freestyle. Chloe kemur hingað í tengslum við taekwondodeild Umf. Selfoss. Hér má lesa meira um Chloe.

Chloe Bruce myndChloe Bruce hefur á undanförnum árum getið sér gott orð í keppni og sýningum á formum í bardagalistum. Auk þess hefur hún, ásamt systur sinni Grace, sem kemur með henni til landsins, stofnað hóp fólks sem keppir í og tekur að sér sýningar. Hópurinn, Team Fusion, hefur verið með sýningar á bardagalistum, Parkour, fimleikum, dansi, svokölluðu Tricking sem mætti kalla þrautakóng (hver getur gert flottasta stökkuð, spakið hoppið eða "trikkið") og ýmsu öðru.

Chloe hefur leikið í mörgum kvikmyndum sem stuntleikari og svokallaður "vlue-screen" leikari. Þar gerir hún hreyfingar sem eru síðan færðar á t.d. Angeline Jolie. Chloe hefur leikið í fjölmörgum auglýsingum um allan heim, tekið þátt í frumsýningu nýju Karate Kid myndarinnar ásamt Jacki Chan og Will Smith og fjölskyldu.

Chloe hefur 4. gráðu svart belti í Tang Soo Do, sem er náskyld taekwondo bardagaíþróttinni. Hún hefur ótrúlegan liðleika og styrk og mun fara yfir æfingar á þeim sviðum á meðan hún er hérlendis, auk þess sem hún mun eðlilega sýna sig og systur sína. Hún er í heimsmetabók Guiness, með flest spörk á mínútu 212 stk., í höfuðhæð. Prófaðu að klappa vegg 212 sinnum í höfuðhæð, með hendinni og þá sérðu hvað 212 snertingar er erfitt MEÐ FÆTINUM.

Myndir segja meira en mörg orð, það þarf bara að googla "Chloe Bruce", "Chloe Bruce training video" eða eitthvað slíkt til að sjá að hér er á ferðinni mikill hvalreki fyri unnendur bardagalista, fimleika, parkour og unnenda hreyfingar almennt.


Á næstunni



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta