Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir frá stjórn Umf. Selfoss

14. apríl 2010  - aðalstjórnar
Ársreikningur framkvæmdastjórnar var lagður fram og undirritaður. Einnig var rætt um undirbúning fyrir aðalfund, skil á efni í ársskýrslu og skipan framkvæmdastjórnar. Þá var rætt um íþrótta- og tómstundaskólann og að allar deildir stæðu saman að honum. Ákveðið að boða fund yfirþjálfara til að samræma framboð sumarnámskeiða. Einnig að auglýsa á heimasíðunni laus störf. Gerð var grein fyrir stöðu vallarframkvæmda og undirbúningi fyrir komandi sumar. 
ÖG

---------------------------------- 

17. mars 2010  - fundur framkvæmdastjórnar
Fram kom að framkvæmdastjóri vinnur að gerð handbókar sem inniheldur verklagsreglur um bókhald og fjármál innan félagsins. Er vinnan vel á veg komin. Stefnt er að því að vinna handbókina sem mest í samráði við þá sem með þessi mál fara innan félagsins. Undirbúningur fyrir aðalfund félagsins er hafinn en hann verður 29. apríl.
ÖG

---------------------------------- 

3. mars 2010 - fundur aðalstjórnar
Á fundi aðalstjórnar 3. mars voru m.a. kynnt drög að ársreikningi félagsins 2009. Fram kom að reikningurinn skilaði jákvæðri niðurstöðu. Rætt var um einstaka liði sem mættu koma betur fram í skýringum. Ákveðið var að starfrækja íþróttaskóla með svipuðu sniði og síðasta ár þ.e. með samvinnu deilda. Kannaðir verði möguleikar á því að bjóða upp á stutt sérnámskeið í einstökum greinum í samvinnu við þær deildir sem það vilja, en undir sama hatti og íþróttaskólinn. Unnið er að nýrri handbók júdódeildar og er stefnt að því að deildin fái útnefningu sem fyrirmyndardeild. Stefnt að því að aðalfundur félagsins verði 29. apríl. Einnig var rætt um mætingu félagsins á HSK-þing 13. mars.
ÖG

---------------------------------- 

16. feb 2010 - fundur aðalstjórnar:
Aðalstjórn hélt fund miðvikudaginn 10. febrúar s.l. Þar var m.a. farið yfir helstu atriði varðandi fyrirhugaða aðalfundi deilda félagsins. Aðalfundur júdódeildar var 10. febrúar, en sunddeild verður með aðalfund sinn 2. mars og fimleikadeild 18. mars. Aðrar deildir hafa ekki ákveðið dagsetningar. Þá var sagt frá því að unnið er að endurnýjun samnings um rekstur íþróttavallarsvæðinsins við Sveitarfélagið Árborg. Fékk formaður félagsins jafnframt umboð til að skrifa undir nýjan samning. Tekin var fyrir beiðni knattspyrnudeildar um skammtímalán. Einnig var rætt um mætingu á HSK-þing sem verður í Þingborg 13. mars.
ÖG

---------------------------------- 

16. feb 2010:
Hér á heimasíðunni fer nú af stað síða með upplýsingum og fréttum af starfi aðalstjórnar og framkvæmdastjórnar Umf. Selfoss. Munu stuttar fréttir birtast hér eins og þurfa þykir. Nýjustu fréttirnar verða efst á síðunni, en jafnframt hægt að skrolla niður og sjá eldri fréttir.
ÖG


Á næstunni

4.8.2010 | Knattspyrna
5.8.2010 | Knattspyrna
5.8.2010 | Knattspyrna
8.8.2010 | Knattspyrna
8.8.2010 | Knattspyrna
10.8.2010 | Knattspyrna

olismot.isBrúarhlaup 2010 - upplýsingar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta