Beint á leiđarkerfi vefsins

Mótokross

Mótokross - RSS

8.6.2010 | Mótokross

Fyrsta mótokrosskeppni sumarsins

Andri_2010Fyrsta mótokrosskeppni sumarsins var haldin í Ólafsfirði laugardaginn 5. júní s.l. Þrír meðlimir mótokrossdeildar Umf. Selfoss tóku þátt í henni. Þorsteinn Helgi Sigurðsson keppti í 85 cc flokknum. Hann barðist bæði motoin um fyrsta sætið, vann fyrra motoið en lenti í öðru í því seinna og hafnaði þ.a.l. í öðru sæti. Andri Orri Hreiðarsson tók þátt í sinni fyrstu keppni, en hann keppti einnig í 85 cc flokknum. Eftir að hafa verið í 5.-6. sæti eftir 5 hringi í seinna motoinu datt hann í þungum sandinum og endaði í 11. sæti eftir daginn. Hákon Andrason tók þátt í Mx unglingaflokki og lenti þar í 3. sæti. Í þeim flokki keppa afar efnilegir ökumenn svo það er greinilegt að Hákon er í fantaformi.

13.5.2010 | Mótokross

Fundur hjá mótokrossdeild miđvikudaginn 19. maí

Félagsfundur verður haldinn hjá Mótokrossdeild Umf. Selfoss, í félagsheimilinu Tíbrá miðvikudaginn 19. maí kl. 20:00. Þar verður m.a. farið yfir starfið framundan. Nánari upplýsingar veitir Magnús s. 695 2058. Allir sem hafa áhuga á mótokross eru velkomnir.

30.4.2010 | Nýjustu fréttir

Grímur Hergeirsson nýr formađur Umf. Selfoss

Lógó SelfossAðalfundur Ungmennafélags Selfoss var haldinn í gær í félagsheimilinu Tíbrá. Mjög góð mæting var á fundinum, en alls mættu 48 af 55 kjörnum fulltrúum, tveir heiðursfélagar, auk fleiri gesta. Lögð var fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom yfirlit yfir starf félagsins og deilda innan þess. Starfið 2009 var mjög öflugt og náðust margir frábærir árangrar bæði íþróttalega og félagslega. Rekstur félagsins gekk vel og voru flestar deildir reknar með rekstrarafgangi.

28.4.2010 | Nýjustu fréttir

Ađalfundur Umf. Selfoss verđur fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:00

Lógó SelfossAðalfundur Ungmennafélags Selfoss verður haldinn á morgun fimmtudaginn 29. apríl í félagsheimilinu Tíbrá. Fundurinn hefst kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Einnig verða veittar viðurkenningar til íþróttakarls og íþróttakonu Umf. Selfoss auk viðurkenninga fyrir góð störf í þágu félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa kjörnir fulltrúar skv. lögum félagsins. Allir félagsmenn og velunnarar eru velkomnir.

5.2.2010 | Nýjustu fréttir

Hvatagreiđslur vegna íţrótta- og/eđa tómstundastarfs

Árborg_merkiHvert barn á aldrinum 6-18 ára sem á lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg á rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar og þar er hægt að sækja um hvatagreiðslurnar rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.

4.1.2010 | Nýjustu fréttir

Ţrettándagleđi miđvikudaginn 6. janúar

jólasveinarJólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.

28.12.2009 | Nýjustu fréttir

Uppskeruhátíđ ÍTÁ 2009 - ţriđjudaginn 29. des.kl. 20:00

Árborg_merkiHin árlega uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands þriðjudaginn 29. des. kl. 20:00. Þar verða afhentir styrkir úr Afreks- og styrktarsjóðum Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf Selfoss, Íþf. Suðra og Íþr. FSu. Hvatningarverðlaun verða veitt, afhentir styrkir fyrir afburðaárangur og jafnframt tilkynnt um kjör íþróttakonu og íþróttakarls árborgar 2009. Boðið verður upp á skemmtiatriði og kaffiveitingar. Allir eru velkomnir.

24.11.2009 | Nýjustu fréttir

Hádegisfundur ÍSÍ - Ungt fólk 2009

ÍSÍ_merkiHádegisfundur ÍSÍ verður haldinn föstudagurinn 27. nóv. Jón Sigfússon framkvæmdastjóri og Álfgeir Logi Kristjánsson rannsóknarstjóri hjá Rannsóknum og Greiningu við HR munu fara yfir rannsóknina Ungt fólk 2009 og rýna í þá þætti sem snúa að íþróttum og/eða íþróttaiðkun. Fyrirlesturinn verður í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00-13.00. Hann er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta