Beint á leiðarkerfi vefsins

Mótokross

Mótokross - RSS

10.12.2008 | Nýjustu fréttir

Forvarnarheimsókn í Sunnulækjarskóla

Í hádeginu í dag mætti vaskur hópur þjálfara og íþróttafólks ásamt Erni Guðnasyni framkvæmdastjóra í Sunnulækjarskóla og átti góða stund með krökkunum í 8. bekk. Markmið heimsóknarinnar var að ræða við krakkana um íþróttir og forvarnir. Tókst fundurinn mjög vel og hlustuðu krakkarnir af athygli og spurðu svo um ýmislegt sem þeim var hugleikið í fundarlok.

20.11.2008 | Nýjustu fréttir

Skilaboð til þeirra sem starfa að íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum

Í ljósi efnahagsástandsins og þeirrar óvissu sem ríkir nú í samfélaginu hefur menntamálaráðherra látið vinna samantekt varðandi möguleg úrræði um sálrænan stuðning við börn og ungmenni. Markmiðið með vinnunni er að styðja þá sem starfa að íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum til að veita börnum og ungmennum viðeigandi stuðning og stuðla þannig að velferð þeirra. Þessi samantekt fylgir hér með þegar fréttin er opnuð...

7.11.2008 | Nýjustu fréttir

Hvað er EVRÓVÍSIR?

Ef þú ert á aldrinu 13-30 ára og þig langar t.d. að læra hárgreiðslu eða blómaskreytingar í öðru landi, læra nýtt tungumál, fara í sjálfboðavinnu, eða vinna í öðru landi í sumarfríinu þínu þá getur þú haft samband við Evróvísi á Íslandi. Þar getur þú fengið svar við þínum spurningum.

5.11.2008 | Nýjustu fréttir

Forvarnir og áhrif efnahagsástandsins rædd á fundi aðalstjórnar

Lógó SelfossAðalstjórn Umf. Selfoss hélt fund í gærkvöldi í Tíbrá og var það 11. fundur aðalstjórnar á árinu. Fundir aðalstjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði. Á fundinum var m.a. samþykkt ný fræðslu- og forvarnarstefna félagsins og ákveðið að halda sérstakan forvarnadag félagsins. Áhrif efnahagsástandsins voru rædd og ákveðið að hefja undirbúning að auknum systkynaafslætt sem mun nýtast barnmörgum fjölskyldum þar sem börn eru í fleiri en einni íþróttagrein...

5.3.2008 | Nýjustu fréttir

Komum Selfossi á kortið í Lífshlaupinu

Lífshlaupið_lógóLífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Selfyssingar eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Lýðheilsustöð gefur í fyrsta skipti út ítarlegar ráðleggingar um hreyfingu nú í upphafi árs 2008. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Inn á vef Lífshlaupsins er hægt að velja um þrjár leiðir.

5.3.2008 | Mótokross

Mótokrossdeild stofnuð innan Umf. Selfoss

Mótokrossmynd2Síðastliðinn fimmtudag var stofnuð mótokrossdeild inna Ungmennafélags Selfoss. Er deildin sú níunda sem starfar innan félagsins. Í stjórn voru kosnir Auðun Daníelsson formaður, Andri Ólafsson gjaldkeri, Sigurður Bjarni Richardsson ritari og Daníel Karlsson og Björn Bragi Sævarsson meðstjórnendur. Ýmislegt er á döfinni hjá deildinni, m.a. brautarmál.


Á næstunni



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta