Beint á leiđarkerfi vefsins

Mótokross

Mótokross - RSS

28.12.2010 | Nýjustu fréttir

Uppskeruhátíđ ÍTÁ - Íţróttakarl og kona Árborgar 2010

Uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar, ÍTÁ, verður haldin í kvöld þriðjudaginn 28. desember kl.20:00 við hátíðlega athöfn í hátíðarsal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hátíðin er eins og nafnið ber til kynna uppgjör íþróttafólks í Árborg á árinu 2010 en þar verður afreksíþróttafólk ársins heiðrað......

8.10.2010 | Nýjustu fréttir

Ţjálfarastig 1 og 2 - almennur hluti í fjarnámi

Skráning stendur nú yfir í fjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ. Skráningin er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og stendur hún yfir til 8. október, en námið hefst þann 11. október. Námið er öllum opið, 16 ára og eldri og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Þetta fjarnám hefur verið afar vinsælt til langs tíma og hafa nemendur verið búsettir vítt og breytt um landið. Námið er allt í fjarnámi, það eru engar staðbundnar lotur. Nemendur leysa verkefni og taka krossapróf á vefsvæði námsins sem vistað er hjá Keili í Reykjanesbæ.

6.10.2010 | Nýjustu fréttir

Fjarnám 1. stigs ţjálfaramenntunar ÍSÍ

ÍSÍ_merkiSkráning í fjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ stendur nú yfir en skráningunni lýkur nk. föstudag, 8. okt. og hefst námið mánudaginn 11. okt.  Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.  Fjarnám 1. stigs samsvarar ÍÞF 1024 og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Þátttaka er öllum heimil 16 ára og eldri.  Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is

27.9.2010 | Nýjustu fréttir

Sögunámskeiđ á 100 ára afmćlisári HSK

HSK_merkiFræðslunet Suðurlands í samvinnu við HSK mun halda námskeið um ungmennafélagshreyfinguna á Suðurlandi í 100 ár á átta kvöldum í október og nóvember í Iðu á Selfossi. Námskeiðið fer fram á mánudagskvöldum kl. 19:30 - 21:40.

23.9.2010 | Nýjustu fréttir

Hćgt ađ skođa bókanir í Tíbrá á heimasíđunni

Nú hefur verið settur upp tengill á heimasíðu Selfoss þar sem má sjá bókanir á sölum í félagsheimillinu Tíbrá. Tengillinn er á forsíðunni neðst í efnisyfirlitinu vinstra megin undir heitinu Tíbrá bókanir. Þeir sem vilja bóka salinn eru beðnir að senda póst á Örn framkvæmdastjóra (umfs@umfs.is) eða slá á þráðinn í síma 482 2477. Dagbókin verður áfram í anddyri Tíbrár, a.m.k. fyrst um sinn, og hægt að skrá sig þar líka. 

23.8.2010 | Mótokross

Flottur árangur eftir sumariđ

Bolalda_2010Fimmta umferðin á Íslandsmótinu í mótokrossi fór fram í Bolöldu, rétt hjá Litlu kaffistofunni, s.l. laugardag. Rúmlega 80 keppendur voru skráðir til leiks í þessari síðustu keppni sumarsins (innan Íslandsmótsins). Nokkuð blés á keppendur og voru brautarstarfsmenn duglegir við að bleyta í brautinni til að sporna við ryki. Fjórir keppendur frá UMFS tóku þátt og gekk þeim vel þrátt fyrir ýmis óhöpp.

19.8.2010 | Mótokross

Fjórđa umferđin í mótokrossi var á Akureyri

Fjórða umferð Íslandsmeistaramótsins í motokrossi fór fram 7. ágúst s.l. á braut KKA á Akureyri. Keppt var á einni flottustu braut Íslands og var umgjörðin í kringum keppnina alveg til fyrirmyndar. Hátt í 100 keppendur voru skráðir til leiks og átti UMFS fjóra af þeim.

10.8.2010 | Mótokross

Góđur árangur Selfoss í 3. umferđ Íslandsmótsins í mótokrossi

Mótokross_6659Þriðja umferðin á Íslandsmótinu í mótokrossi var haldin 24. júlí s.l. í Sólbrekku á Suðurnesjum. Keppnin var haldin í blíðskaparveðri. Sól og vindur olli því að brautin þornaði fljótt og varð rykið svo mikið að ökumenn sáu varla fram fyrir sig. Fimm keppendur frá mótokrossdeild UMFS tóku þátt og gerðu góða hluti.

4.8.2010 | Nýjustu fréttir

Unglingalandsmót UMFÍ verđur á Selfossi 2012

Við setningu 13. Unglingalandsmóts UMFÍ í Borgarnesi s.l. föstudag tilkynnti Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, að HSK hefð verið valið sem mótshaldari fyrir 15. Unglingalandsmót UMFÍ 2012 með mótsstað á Selfossi. Auk HSK sóttu UMSE/UFA, með Akureyri sem mótsstað, og USÚ með Hornarfjörð sem mótsstað, um að fá að halda umrætt mót. Næsta Unglingalandsmót sem er hið 14. í röðinni verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina 2011.

8.6.2010 | Mótokross

Fyrsta mótokrosskeppni sumarsins

Andri_2010Fyrsta mótokrosskeppni sumarsins var haldin í Ólafsfirði laugardaginn 5. júní s.l. Þrír meðlimir mótokrossdeildar Umf. Selfoss tóku þátt í henni. Þorsteinn Helgi Sigurðsson keppti í 85 cc flokknum. Hann barðist bæði motoin um fyrsta sætið, vann fyrra motoið en lenti í öðru í því seinna og hafnaði þ.a.l. í öðru sæti. Andri Orri Hreiðarsson tók þátt í sinni fyrstu keppni, en hann keppti einnig í 85 cc flokknum. Eftir að hafa verið í 5.-6. sæti eftir 5 hringi í seinna motoinu datt hann í þungum sandinum og endaði í 11. sæti eftir daginn. Hákon Andrason tók þátt í Mx unglingaflokki og lenti þar í 3. sæti. Í þeim flokki keppa afar efnilegir ökumenn svo það er greinilegt að Hákon er í fantaformi.

13.5.2010 | Mótokross

Fundur hjá mótokrossdeild miđvikudaginn 19. maí

Félagsfundur verður haldinn hjá Mótokrossdeild Umf. Selfoss, í félagsheimilinu Tíbrá miðvikudaginn 19. maí kl. 20:00. Þar verður m.a. farið yfir starfið framundan. Nánari upplýsingar veitir Magnús s. 695 2058. Allir sem hafa áhuga á mótokross eru velkomnir.

30.4.2010 | Nýjustu fréttir

Grímur Hergeirsson nýr formađur Umf. Selfoss

Lógó SelfossAðalfundur Ungmennafélags Selfoss var haldinn í gær í félagsheimilinu Tíbrá. Mjög góð mæting var á fundinum, en alls mættu 48 af 55 kjörnum fulltrúum, tveir heiðursfélagar, auk fleiri gesta. Lögð var fram vönduð ársskýrsla þar sem fram kom yfirlit yfir starf félagsins og deilda innan þess. Starfið 2009 var mjög öflugt og náðust margir frábærir árangrar bæði íþróttalega og félagslega. Rekstur félagsins gekk vel og voru flestar deildir reknar með rekstrarafgangi.

28.4.2010 | Nýjustu fréttir

Ađalfundur Umf. Selfoss verđur fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:00

Lógó SelfossAðalfundur Ungmennafélags Selfoss verður haldinn á morgun fimmtudaginn 29. apríl í félagsheimilinu Tíbrá. Fundurinn hefst kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Einnig verða veittar viðurkenningar til íþróttakarls og íþróttakonu Umf. Selfoss auk viðurkenninga fyrir góð störf í þágu félagsins. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa kjörnir fulltrúar skv. lögum félagsins. Allir félagsmenn og velunnarar eru velkomnir.

5.2.2010 | Nýjustu fréttir

Hvatagreiđslur vegna íţrótta- og/eđa tómstundastarfs

Árborg_merkiHvert barn á aldrinum 6-18 ára sem á lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg á rétt á svonefndum hvatagreisðlum til niðurgreiðslu á skipulögðu íþróttastarfi í Árborg. Þessi upphæð er kr. 10.000 á hvert barn fyrir viðurkennt námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur. Mín Árborg er íbúagátt Sveitarfélagsins Árborgar og þar er hægt að sækja um hvatagreiðslurnar rafrænt. Farið er inn á íbúagáttina í gegnum heimasíðu Árborgar www.arborg.is eða ibuagatt.arborg.is. Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning" og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi eða að náð sé í það í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.

4.1.2010 | Nýjustu fréttir

Ţrettándagleđi miđvikudaginn 6. janúar

jólasveinarJólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði miðvikudaginn 6. janúar. Farin verður blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýnig verður, jólasveinar kveðja og álfar og tröll mæta á svæðið. Gaman væri að sjá sem flesta í trölla-, álfa- eða jólasveinabúningum. Vinsamlegast fylgist með útvarpsfréttum ef veðurútlit er tvísýnd.

Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta