Beint á leiđarkerfi vefsins

Mótokross

Mótokross - RSS

2.7.2009 | Nýjustu fréttir

Styttist í Landsmót UMFÍ á Akureyri

Landsmót_UMFÍ_2009Nú styttist óðum í Landsmót UMFÍ, en mótið verður haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí næstkomandi. Eyjafjörður mun væntanlega skarta sínu fegursta og verður án efa gaman að koma þangað. Undirbúningur fyrir mótið er á lokastigi. Heimamenn hafa lagt mikinn metnað í mótið og verður öll aðstaða til fyrirmyndar. HSK mun senda öflugt keppnislið á Landsmótið og tekur þátt í 16 af 20 keppnisgreinum. Margir Selfyssingar eru í liði HSK, en alls munu um 200 keppendur víðs vegar af Suðurlandi keppa fyrir sambandið. Í veglegu Landsmótsblaði HSK, sem fylgir með Sunnlenska fréttablaðinu í dag, má sjá lista yfir alla keppendur.

Fjölbreytt dagskrá verður á mótinu auk keppnisgreinanna 20. Almenningur getur tekið þátt í ýmis konar íþróttagreinum, viðburðum og verkefnum. Má þar nefna götuhlaup, keilu, strandblak, sjósund, fræðslugöngur, ratleik, kirkjutröppuhlaup o.fl. Einnig verða kvöldvökur, fyrirlestrar og afmælissýning í Amtsbókasafninu. Landsmótið á Akureyri er afmælismót því 100 ár eru frá því að fyrsta Landsmótið var haldið á Akyreyri.

Einn af hápunktum landsmótanna er hin formlega mótssetning, sem fer fram á hinum nýja íþróttaleikvangi Akureyrarbæjar við Hamar föstudagskvöldið 10. júlí og hefst kl. 20. Áhersla er lögð á að mótssetningin verði í senn hátíðleg og skemmtileg. Mótshaldarar hvetja alla þá fjölmörgu gesti sem verða í bænum til þess að fjölmenna á mótssetninguna og skapa þá umgjörð sem henni ber. Ýmsir landsþekktir listamenn koma fram auk íþróttafólks á öllum aldri.

Landsmót UMFÍ er öllum opið og er aðgangseyrir enginn. Tjaldstæði eru einnig ókeypis. Við hvetjum sem flesta Selfyssinga til að fjölmenna á Landsmótið. Stemningin verður örugglega frábær og næsta víst margir munu koma heim með hlýjar minningar frá Landsmóti.

Allar nánari upplýsingar um Landsmót UMFÍ ásamt dagskrá mótsins má finna á heimasíðu mótsins. www.landsmotumfi.is

 


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta