Beint á leiđarkerfi vefsins

Mótokross

Mótokross - RSS

4.8.2010 | Nýjustu fréttir

Unglingalandsmót UMFÍ verđur á Selfossi 2012

Við setningu 13. Unglingalandsmóts UMFÍ í Borgarnesi s.l. föstudag tilkynnti Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, að HSK hefð verið valið sem mótshaldari fyrir 15. Unglingalandsmót UMFÍ 2012 með mótsstað á Selfossi. Auk HSK sóttu UMSE/UFA, með Akureyri sem mótsstað, og USÚ með Hornarfjörð sem mótsstað, um að fá að halda umrætt mót. Næsta Unglingalandsmót sem er hið 14. í röðinni verður haldið á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina 2011.

Þess má einnig geta að 27. Landsmót Ungmennafélags Íslands verður haldið á Selfossi árið 2013. Af þessu má ljóst vera að Sunnlendingar hafa í nógu að snúast næstu misserin við að undirbúa mótin tvö. Nú á sér stað glæsileg uppbygging íþróttamannvirkja á Selfossi og mun hún koma að góðum notum. Fyrsti áfangi að 700 manna áhorfendastúku við knattspyrnuvöllinn er á lokastigi og er stefnt á að vígja hana ásamt glæsilegum grasvelli á næstunni. Þá er unnið hörðum höndum að gerð fullkomins frjálsíþróttavallar sem staðsettur er í framhaldi af knattspyrnuvellinum. Stefnt er að því að leggja gerviefni á hlaupabrautir í haust.


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta