Þriðja umferðin á Íslandsmótinu í mótokrossi var haldin 24. júlí s.l. í Sólbrekku á Suðurnesjum. Keppnin var haldin í blíðskaparveðri. Sól og vindur olli því að brautin þornaði fljótt og varð rykið svo mikið að ökumenn sáu varla fram fyrir sig. Fimm keppendur frá mótokrossdeild UMFS tóku þátt og gerðu góða hluti.
Í 85 cc flokknum barðist Þorsteinn Helgi Sigurðarsson um 1. sætið við Guðbjart Magnússon eins og í síðustu keppnum, en endaði í öðru sæti. Andri Orri Hreiðarsson var skráður til leiks en varð að hætta við vegna veikinda.
Í kvennaflokki keppti Einey Ösp Gunnarsdóttir og má segja að þetta hafi verið hennar dagur. Eftir góð stört og jafnan akstur endaði hún í öðru sæti eftir daginn.
Ragnar Páll Ragnarsson keppti í unglingaflokki. Endaði hann í 12. sæti eftir daginn, en þessi flokkur er fullur af góðum og efnilegum hjólurum.
Jóhann Smári Gunnarsson keppti í mx2 og mx open. Hann lenti í tómu veseni með rykið í störtunun og endaði þar af leiðandi aftarlega eftir daginn.
Unglingalandsmót UMFÍ var haldið um verslunarmannahelgina í Borganesi. Þar var keppt í mótokrossi og fór keppnin fram á Akranesi. Andri Orri Hreiðarsson tók þátt fyrir hönd UMFS. Stóð hann sig með stakri prýði og endaði í 5. sæti eftir daginn.
