Beint á leiđarkerfi vefsins

Mótokross

Mótokross - RSS

19.8.2010 | Mótokross

Fjórđa umferđin í mótokrossi var á Akureyri

Fjórða umferð Íslandsmeistaramótsins í motokrossi fór fram 7. ágúst s.l. á braut KKA á Akureyri. Keppt var á einni flottustu braut Íslands og var umgjörðin í kringum keppnina alveg til fyrirmyndar. Hátt í 100 keppendur voru skráðir til leiks og átti UMFS fjóra af þeim. 

85cc flokkur:
Þorsteinn Helgi Sigurðsson keppti í 85cc flokknum og lenti í baráttu um 2. sætið við heimamann, en varð að láta sér linda 3. sætið, en 2. sætið er búið að vera hans í sumar.
Andri Orri Hreiðarsson keppti einnig í þessum flokki og átti ágætis dag en hann endaði í 11. sæti eftir daginn.  

Kvennaflokkur:
Einey Ösp Gunnarsdóttir keppti í kvannaflokknum og átti hún ágætis dag. Hún átti góð stört en datt og endaði í 11. sæti eftir daginn.

Unglingaflokkur:
Okkar fulltrúi í unglingaflokki var Ragnar Páll Ragnarsson, hann endaði í 17. sæti. Í þessum flokki væri gaman að sjá fleiri hjólara úr félaginu keppa, þar sem margir efnilegir unglingar eru innan félagsins.  

Næsta íslandsmeistarakeppni í motorcrossi er laugadaginn 21. ágúst í Bolöldu, sem er svæðið beint á móti Litlu kaffistofunni.


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta