Beint á leiđarkerfi vefsins

Mótokross

Mótokross - RSS

23.8.2010 | Mótokross

Flottur árangur eftir sumariđ

Fimmta umferðin á Íslandsmótinu í mótokrossi fór fram í Bolöldu, rétt hjá Litlu kaffistofunni, s.l. laugardag. Rúmlega 80 keppendur voru skráðir til leiks í þessari síðustu keppni sumarsins (innan Íslandsmótsins). Nokkuð blés á keppendur og voru brautarstarfsmenn duglegir við að bleyta í brautinni til að sporna við ryki. Fjórir keppendur frá UMFS tóku þátt og gekk þeim vel þrátt fyrir ýmis óhöpp.

Bolalda_2010Þorsteinn Helgi Sigurðarson og Andri Orri Hreiðarsson tóku þátt í 85cc flokknum.
Þorsteinn Helgi háði baráttu um toppsætið eins og undanfarið en varð að láta sér linda 4. sætið. Hann er í öðru sæti til Íslandsmeistara.
Andri Orri var óheppinn þennan dag því hann bræddi úr vélinni í upphitunarhringnum. Hann endaði í 15. sæti til Íslandsmeistara.
Einey Ösp Gunnarsdóttir keppti í kvennaflokki og endaði hún í 5. sæti eftir daginn þrátt fyrir að hafa dottið í seinna motoi og tapað miklum tíma á því. En hún endaði í 7.sæti til Íslandmeistara.
Ragnar Páll Ragnarsson keppti í unglingaflokki. Hann varð fyrir óhappi þar sem hann datt og drap á hjólinu og átti í erfiðleikum með að koma því í gang og endaði þ.a.l. í 15. sæti eftir daginn. Hann varð í 11. sæti til Íslansmeistara. Af þessu má ljóst vera að þetta er flottur árangur hjá okkar fólki eftir sumarið.


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta