Grýlupottahlaupið

Grýlupottahlaupið fer fram sex laugardaga í röð.

Skipulag hlaupsins árið 2024:

Hlaup 1-     6.apríl

Hlaup 2-   13.apríl

Hlaup 3-   20.apríl

Hlaup 4 -  27.apríl

Hlaup 5-    4.maí

Hlaup 6-   11.maí

Grýlupottahlaup ársins 2024 er í 54.skipti sem hlaupið er haldið, hlaupið hófst árið 1968 en lá niðri árin 2020 og 2021 vegna heimsfaraldurs. Hlaupaleiðin er 880m löng og er öll á göngustígum nema endaspretturinn er á tartaninu. Skráning er í frjálsíþróttahluta Selfosshallarinnar (suðurendanum) og hefst hún klukkan 10. Klukkan 11 er hlaupið ræst af stað. Hlauparar eru ræstir saman sex í einu með 30 sekúndna millibili.  Þátttaka er ókeypis.

Að loknum 6 hlaupum eru tekin saman besti árangur úr samanlögðum fjórum hlaupum og veitt verðlaun. Verðlaunaafhendingin verður auglýst síðar.

Ef þið sjáið villu í úrslitum (vitlaust nafn, rangt fæðingarár eða tími stemmir ekki) sendið þá athugasemd á netfangið frjalsar@umfs.is