Guðbjörg H. Bjarnadóttir íþróttakennari hefur kennt ungbarnasund á Selfossi síðan 1991. Kennt er innilaug Sundhallar Selfoss í upphitaðri sundlaug ca. 34° c. Námskeiðin eru seinnipart fimmtudags eða föstudags, einu sinni í viku í 10 vikur. Byrjendahópar í 30 mínútur og framhaldshópar í 45 mínútur.
Á byrjendanámskeiðum eru börnin ca. 2 - 6 mánaða. Í boði eru svo nokkur framhaldsnámskeið, þar sem elstu börnin eru ca. 4 ára og farin að læra sundtökin.
Tilgangur: Að börnin læri að njóta sín í vatninu.
Markmið: Að venjast vatninu sem hreyfiumhverfi í gegnum sundið, efla hreyfiþroska, tilfinninga- og félagsþroska, þannig að börnin verði smá saman sjálfbjarga í vatni.
Í sundinu takast börnin á við ýmis verkefni þar af leiðandi fá þau örvun sem er jákvæð fyrir allan áframhaldandi þroska t.d. sjálfstraust og sjálfsmynd. Áhersla er lögð á leikinn, samspil foreldra og barns, líkamssnertingu og augnsamband (óskipta athygli).
Því meiri örvun því betra!!! Umhverfið í ungbarnasundinu hefur jákvæð áhrif á allan almennan þroska. Móttaka skynáreita og úrvinnsla þeirra er undirstaða alls þroska.
Barn sem hefur stundað ungbarnasund frá fyrstu mánuðum lífs síns hefur því fengið góða byrjun í upphafi þroska síns bæði á líkama og sál.
Skráning á námskeið og frekri upplýsingar hjá Guðbjörgu í síma 482-2808 og 848-1626.
