Góur árangur á Góumóti

Írena og Telma í góðri glímu.
Írena og Telma í góðri glímu.

Góumót Júdófélags Reykjavíkur var haldið laugardaginn 24. febrúar en það er æfingamót fyrir yngstu iðkendurna frá 7-10 ára. Mótið er opið öllum klúbbum og fá allir keppendur þátttökuverðlaun. Keppendur voru 52 frá eftirfarandi fimm klúbbum, Júdófélagi Reykjavíkur (JR), Júdódeild Ármanns (JDÁ), Júdófélagi Reykjanesbæjar (JRB), Júdódeild Grindavíkur (UMFG) og Júdódeild Selfoss (Umf. Selfoss).

Flestir þátttakendanna voru að taka þátt í sínu fyrsta móti og stóðu þau sig alveg frábærlega. Höfðu þjálfarar þeirra í nógu að snúast við að undirbúa þau og leiðbeina. Börnunum er raðað saman eftir aldri og þyngdm, eins og venja er, og keppa stúlkur og drengir stundum saman í flokkum ef þannig stendur á sem og að stundum þarf að sameina þyngdarflokka svo allir fái mótherja.

Mótið var vel sótt bæði af keppendum sem og foreldrum og eða öðrum skyldmennum sem að fylgdust með keppninni. Mótið var frábær skemmtun og ótrúlega flott judo sem þessir ungu iðkendur sýndu. Flestir keppendurnir komu frá Júdódeild Selfoss að þessu sinni og unnu þeir flest gullverðlaunin en þeir hafa oftast verið fjölmennastir frá 2012 eða sex sinnum